Játningar Samfylkingarkonu

Ég er flokksbundin í Samfylkingunni. Hef verið það í bráðum tólf ár. Þar á undan var ég félagi í Samtökum um kvennalista og Kópavogslistanum. Mér finnst gaman að taka þátt í pólitískum umræðum, hvort sem það er á fundum, í vinahópi eða á netinu. Stundum fæ ég það framan i mig að það sé nú ekkert að marka neitt sem ég segi, af því ég er skráð í stjórnmálaflokk. Slíkum athugasemdum hefur fjölgað verulega eftir hrun.
Þegar ég fékk kosningaréttinn tók ég það mjög alvarlega. Í mínum fyrstu bæjarstjórnarkosningum ákvað ég að kjósa taktískt. Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag voru í meirihluta sem ég vildi hafa áfram, svo ég kaus þann flokk sem tæpara stóð. Í fyrstu Alþingiskosningunum fór ég í gegnum þetta kerfisbundið og setti niður á blað þau stefnumál sem ég studdi. Síðan skoðaði ég kosningastefnuskrár flokkanna og kaus flokkinn sem studdi flest af mínum málum. Úr varð að ég kaus Samtök um kvennalista.
Mér datt samt ekki í hug að ganga í neinn flokk fyrr en ég kom heim úr háskólanámi í Bandaríkjunum. Ég vann þar tímabundið að loknu námi og kynntist þá því óöryggi að vera ekki sjúkratryggð í fyrsta sinn. Upphaflega gekk ég í stjórnmálaflokk til þess að reyna að hafa einhver áhrif á umhverfi mitt. Ég tók þátt í starfi ungliða sem vildu sameina vinstri flokkana, fyrst og fremst vegna þess að ég taldi að það væri besta leiðin til þess að sporna við aukinni einkavæðingu og markaðsvæðingu velferðarkerfisins. Ég tók líka þátt í stofnun Kópavogslistans, sem var tilraun til þess að brjóta á bak aftur áralanga setu hægri flokkanna í bæjarstjórn Kópavogs.
Að sumu leyti tókst ætlunarverkið með stofnun Samfylkingarinnar fyrir tólf árum, en að sumu leyti ekki. Hópur manna klauf sig út úr undirbúningsstarfinu og stofnaði Vinstri hreyfinguna - grænt framboð. Nú hefur VG klofnað aftur og einn fyrrum þingmaður flokksins leiðir nýtt framboð sem er að fá talsvert fylgi í skoðanakönnunum, hvað sem síðar verður. Einn fyrrum þingmaður Samfylkingarinnar og Framsóknarflokksins er síðan í forsvari fyrir annað nýtt framboð í samvinnu við Besta flokkinn, sem varð til úr engu og sigraði í síðustu borgarstjórnarkosningum. Mögulega verður sett nýtt met hvað fjölda framboða varðar í næstu alþingiskosningum.
Ég hef eignast nokkra góða vini í þessu pólitíska brölti mínu, fjöldann allan af kunningjum og einhverja viðhlæjendur líka eins og gengur. Ég verð mjög líklega ekki flokksbundin alla ævi. Þegar upplifunin er sú að áhrifin séu engin, er erfitt að sjá tilganginn í því að vera á skrá. Ég lofa því heldur ekki að kjósa alltaf sama flokkinn. Eins og er sé ég engan annan flokk sem ég get hugsað mér að kjósa, en það getur alltaf breyst. Ég mun halda áfram að mynda mér mínar eigin skoðanir á hlutunum hér eftir sem hingað til.


<< Home