miðvikudagur, janúar 11, 2012

Vegið að velferð kvenna

Winter city

Í nóvember 2008 var bráðabirgðaákvæði V bætt við lög um atvinnuleysistryggingar, sem tryggði að fólk sem hafði misst vinnu sína að fullu eða öllu og var komið í hlutastarf, átti rétt á atvinnuleysisbótum samhliða skertu starfshlutfalli. Tekjurnar sem fengust í hlutastarfinu áttu ekki að skerða atvinnuleysisbæturnar. Ákvæðið var sett vegna „sérstakra aðstæðna á vinnumarkaði“ og það átti upphaflega að gilda til 1. maí 2009.

Síðan hefur þetta ákvæði verið framlengt nokkrum sinnum með örlitlum breytingum, nú síðast í júní 2011. Í athugasemd við frumvarp til laga um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar, sem samþykkt var sl. sumar segir um bráðabirgðaákvæðið að það hafi „reynst vel í framkvæmd“ þar sem það hafi „leitt til þess að færri einstaklingar missa störf sín að fullu en ella hefði verið sökum tímabundinna erfiðleika á vinnumarkaði.“

Þáverandi félags- og tryggingamálanefnd Alþingis lagði til að frumvarpið yrði samþykkt óbreytt og vakti sérstaka athygli á því að um 2/3 þeirra sem þáðu bætur skv. bráðabirgðaákvæðinu væru konur. Í apríl 2011 fengu 1.198 einstaklingar greiddar atvinnuleysisbætur skv. þessu ákvæði, þar af 791 kona. Af þeim voru 514 konur í 50-60% starfshlutfalli. Ef við miðum við að fólkið hafi að meðaltali verið í 60% starfshlutfalli og flest á ótekjutengdum bótum, var hvert þeirra að fá um 40 þúsund krónur útborgaðar á mánuði frá Vinnumálastofnun.

Frumvarpið var samþykkt og ákvæðið framlengt til 31. desember sl., en tímann frá júní til desember átti að mati félags- og tryggingamálanefndar að nota til að endurskoða lögin um atvinnuleysisbætur í heild sinni. Vegna þess hve margar konur þáðu bætur skv. bráðabirgðaákvæði V taldi nefndin mikilvægt að kynjasjónarmið yrðu höfð í huga við endurskoðunina.

Í nóvember 2011 voru rúmlega 1900 einstaklingar á atvinnuleysisbótum að hluta til á móti hlutastarfi. Atvinnuleysisprósentan var 7,1 prósent og aðeins rúmu hálfu prósenti lægri en árið áður. Aðstæður á vinnumarkaði virtust því enn vera sérstakar, í það minnsta miðað við íslenskan veruleika. En þrátt fyrir mikið atvinnuleysi og þá staðreynd að ákvæðið hefði reynst vel og nýst konum sérstaklega vel, þá töldu þingmenn, velferðarnefnd Alþingis og velferðarráðherra óþarft að framlengja það frekar.

Rétt fyrir áramót var svo öllum sem þegið höfðu hlutabætur skv. bráðabirgðaákvæði V í atvinnuleysistryggingalögum tilkynnt að ákvæðið hefði ekki verið framlengt. Um áramótin voru allir þeir sem féllu undir þetta ákvæði síðan teknir af atvinnuleysisskrá. Kynjasjónarmiðin, sem framsögumaður félags- og trygginganefndar lagði áherslu á í umræðum hálfu ári áður, voru allt í einu ekki lengur mikilvæg.


Því meðan til er böl sem bætt þú gast

og barist var á meðan hjá þú sast

er ólán heimsins einnig þér að kenna

Tómas Guðmundsson
  • Myndasíðan mín
  • Ísland
  • Hundalíf
  • Palestína
  • www.flickr.com
    This is a Flickr badge showing public photos from farfuglinn. Make your own badge here.
  • Gönguferð á sandi

  • Harpa
  • Hildigunnur
  • Nanna
  • Þórdís
  • Telma
  • Afi
  • Alla
  • Anna
  • Antík
  • Arngrímur
  • Ásta
  • Baun
  • Beta
  • Bókvit
  • Einar J.
  • Ella Stína
  • Elías
  • Erla
  • Erna
  • Erna E.
  • Guðný Anna
  • Gunnar Hrafn
  • Gurrí
  • Gvendarbrunnur
  • Hanna litla
  • Harpa Hreins
  • Heiða B.
  • Hildur
  • Hreinn
  • Hryssa
  • Hugskot
  • Ibba Sig.
  • Ingibjörg
  • Kalli
  • Kisuvinur
  • Kitta
  • Kókó
  • Launsátur
  • Lilja
  • Ljúfa
  • Matti
  • Ólöf Jakobína
  • París
  • Silja
  • Snilldur
  • Steingerður
  • Svanurinn
  • Teitur
  • Tóta litla
  • Vélstýran


  • Locations of visitors to this page
  • Global voices
  • OneVoice Movement
  • Palestine blogs

  • Fésbókin
  • Myndasíða Hörpu
  • Parísardaman
  • Brall í bauk
  • Hugarflug
  • Hugsandi
  • Ísland-Palestína
  • Name:
    Location: Iceland

    Eilífðarstúdent, íbúðareigandi, yngri systir, dramadrottning, lestrarhestur, bíómyndafíkill og áhugamanneskja um ferðalög með meiru. Lönd sem ég hef komið til Evrópulönd sem ég hef heimsótt Bandarísk fylki sem ég hef komið til

    Powered by Blogger

    -->