föstudagur, desember 30, 2011

Áramótaglaðningur ríkisstjórnarinnar

Winter

Eins og svo margir aðrir missti ég vinnuna í kjölfar bankahrunsins. Ég var samt svo heppin að fá strax vinnu aftur, en reyndar bara hálfan daginn. Ég lét það ekki mikið á mig fá og fór í fullt nám veturinn 2010-2011 með hálfri vinnu. Tók námslán og hafði það sæmilegt. Var síðan enn heppnari þegar ég fékk með þrjósku í gegn nokkra lækkun skulda í gegnum sértæka skuldaaðlögun síðastliðið sumar, einmitt þegar námslánunum sleppti. Fékk auk þess fulla sumarvinnu og í haust bauðst mér hækkað starfshlutfall í vinnunni.

Á móti 70% starfi hef ég í vetur fengið 30% atvinnuleysisbætur, sem útborgaðar eru tæplega 30 þúsund krónur á mánuði. Það er kannski ekki mikið, en það munar talsvert um það hvort að afgangurinn á mánuði eftir fasta reikninga er 30 þúsund eða 60 þúsund krónur. Ég er ekki ein um þetta, því að tæplega tvö þúsund manns á atvinnuleysisskrá í nóvember sl. voru í hlutastarfi á móti hlutabótum. Eflaust byggir réttur margra þeirra til bóta á bráðabirgðaákvæði, sem sett var í lög um atvinnuleysistryggingar á kjölfar hrunsins og hefur síðan verið endurnýjað reglulega.

Þegar ég sótti um atvinnuleysisbæturnar í haust vissi ég að minn réttur byggðist á þessu ákvæði og jafnframt, að það myndi að óbreyttu renna út um áramótin. Ég spurði sérstaklega um það hvort að ákvæðið yrði ekki endurnýjað, þegar ég skráði mig. Starfsmaðurinn sagðist ekki geta fullyrt neitt, en reiknaði þó frekar með því. Enda engin ástæða til annars, þar sem atvinnuleysið er enn í kringum sjö prósentin og í raun lítið lægra nú í nóvember en árið á undan. Reyndar er það nær átta prósent hér á höfuðborgarsvæðinu. Ég bjóst því ekki við öðru en að greiðslurnar myndu halda áfram.

Í dag, einum degi fyrir áramót, fæ ég svo eftirfarandi tölvupóst sendan frá Vinnumálastofnun: "Vinnumálastofnun vill vekja athygli þína á því að gildistími ákvæðis til bráðabirgða V í lögum nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum, fellur niður um næstu áramót. Greiðslur til þín úr Atvinnuleysistryggingasjóði á grundvelli ákvæðisins munu því jafnframt falla niður frá og með sama tíma. Til að fá frekari upplýsingar er bent á heimasíðu stofnunarinnar."

Þarna er eflaust hægt að losna við góðan hluta af þeim tvö þúsund hræðum sem hafa verið á atvinnuleysisbótum á móti hlutastarfi af atvinnuleysisskrá, og hrósa sér síðan af lækkuðum atvinnuleysistölum í kjölfarið. Auðvitað er það forgangsverkefni að taka örfáa þúsundkalla af fólki, sem hefur ekki enn fengið fulla vinnu þó að það óski þess. Við höfum það jú öll svo gott. Takk Vinnumálastofnun. Takk velferðarráðherra. Takk Alþingi. Ég vona að nýárssteikin smakkist vel.


Því meðan til er böl sem bætt þú gast

og barist var á meðan hjá þú sast

er ólán heimsins einnig þér að kenna

Tómas Guðmundsson
  • Myndasíðan mín
  • Ísland
  • Hundalíf
  • Palestína
  • www.flickr.com
    This is a Flickr badge showing public photos from farfuglinn. Make your own badge here.
  • Gönguferð á sandi

  • Harpa
  • Hildigunnur
  • Nanna
  • Þórdís
  • Telma
  • Afi
  • Alla
  • Anna
  • Antík
  • Arngrímur
  • Ásta
  • Baun
  • Beta
  • Bókvit
  • Einar J.
  • Ella Stína
  • Elías
  • Erla
  • Erna
  • Erna E.
  • Guðný Anna
  • Gunnar Hrafn
  • Gurrí
  • Gvendarbrunnur
  • Hanna litla
  • Harpa Hreins
  • Heiða B.
  • Hildur
  • Hreinn
  • Hryssa
  • Hugskot
  • Ibba Sig.
  • Ingibjörg
  • Kalli
  • Kisuvinur
  • Kitta
  • Kókó
  • Launsátur
  • Lilja
  • Ljúfa
  • Matti
  • Ólöf Jakobína
  • París
  • Silja
  • Snilldur
  • Steingerður
  • Svanurinn
  • Teitur
  • Tóta litla
  • Vélstýran


  • Locations of visitors to this page
  • Global voices
  • OneVoice Movement
  • Palestine blogs

  • Fésbókin
  • Myndasíða Hörpu
  • Parísardaman
  • Brall í bauk
  • Hugarflug
  • Hugsandi
  • Ísland-Palestína
  • Name:
    Location: Iceland

    Eilífðarstúdent, íbúðareigandi, yngri systir, dramadrottning, lestrarhestur, bíómyndafíkill og áhugamanneskja um ferðalög með meiru. Lönd sem ég hef komið til Evrópulönd sem ég hef heimsótt Bandarísk fylki sem ég hef komið til

    Powered by Blogger

    -->