mánudagur, júní 20, 2011

Útskrift og heilbrigði



Það var falleg útskriftarathöfn í Hörpunni um helgina, þegar 470 nemendur útskrifuðust frá Háskólanum í Reykjavík. Ég var svolítið búin að vandræðast með það hvort ég ætti að mæta, þar sem ég var bara að klára eins árs nám, en á endanum fór ég og sé ekki eftir því. Þetta er glæsilegt hús og ég hlakka til þess að koma þangað aftur til að sjá óperuna í haust. Svo var gaman að hitta aftur samnemendur úr kennslufræðinni, síðasta hópinn sem lýkur þessu námi frá HR. Loks var mjög áhugavert að sjá allan þann hóp kandidata sem var að ljúka námi.

Mesta athygli mína vakti stór hópur úr verkfræðinni. Það eru til alls konar tegundir verkfræði sem ég hafði aldrei heyrt minnst á áður, eins og fjármálaverkfræði og heilbrigðisverkfræði. Margar ungar konur voru að útskrifast úr síðarnefndu greininni. Reyndar sagði mér starfsmaður HR að það væri bara á Íslandi sem heilbrigðisverkfræðin væri kvennafag. Á ensku heitir hún bioengineering og víða er meirihluti nemenda karlar, en tengingin við heilbrigðið í íslenska heitinu og þar með heilbrigðisstéttir fær konur til að flykkjast í greinina. Sumir vilja beita eðlishyggjunni þegar rætt er um námsval kynjanna, en eins og þetta litla dæmi sýnir er það oft ímyndin sem ræður mestu.


Því meðan til er böl sem bætt þú gast

og barist var á meðan hjá þú sast

er ólán heimsins einnig þér að kenna

Tómas Guðmundsson
  • Myndasíðan mín
  • Ísland
  • Hundalíf
  • Palestína
  • www.flickr.com
    This is a Flickr badge showing public photos from farfuglinn. Make your own badge here.
  • Gönguferð á sandi

  • Harpa
  • Hildigunnur
  • Nanna
  • Þórdís
  • Telma
  • Afi
  • Alla
  • Anna
  • Antík
  • Arngrímur
  • Ásta
  • Baun
  • Beta
  • Bókvit
  • Einar J.
  • Ella Stína
  • Elías
  • Erla
  • Erna
  • Erna E.
  • Guðný Anna
  • Gunnar Hrafn
  • Gurrí
  • Gvendarbrunnur
  • Hanna litla
  • Harpa Hreins
  • Heiða B.
  • Hildur
  • Hreinn
  • Hryssa
  • Hugskot
  • Ibba Sig.
  • Ingibjörg
  • Kalli
  • Kisuvinur
  • Kitta
  • Kókó
  • Launsátur
  • Lilja
  • Ljúfa
  • Matti
  • Ólöf Jakobína
  • París
  • Silja
  • Snilldur
  • Steingerður
  • Svanurinn
  • Teitur
  • Tóta litla
  • Vélstýran


  • Locations of visitors to this page
  • Global voices
  • OneVoice Movement
  • Palestine blogs

  • Fésbókin
  • Myndasíða Hörpu
  • Parísardaman
  • Brall í bauk
  • Hugarflug
  • Hugsandi
  • Ísland-Palestína
  • Name:
    Location: Iceland

    Eilífðarstúdent, íbúðareigandi, yngri systir, dramadrottning, lestrarhestur, bíómyndafíkill og áhugamanneskja um ferðalög með meiru. Lönd sem ég hef komið til Evrópulönd sem ég hef heimsótt Bandarísk fylki sem ég hef komið til

    Powered by Blogger

    -->