föstudagur, júní 24, 2011

Hvenær drepur maður mann?



Um síðustu helgi birti Fréttatíminn, nýlegt fríblað, forsíðufrétt um kynferðislega misnotkun innan kaþólsku kirkjunnar á Íslandi. Byggt var á nafnlausum frásögnum tveggja karlmanna, sem sögðust í blaðinu hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi af hálfu starfsmanna kirkjunnar. Annar hafði verið beittur ofbeldi af ónafngreindum kaþólskum presti hérlendis, en hinn sagði frá ofbeldi sem skólastjóri Landakotsskóla og þýsk kennslukona við skólann beittu hann. Skólastjórinn og kennslukonan voru nafngreind í greininni og myndir birtar af þeim, en bæði eru þau látin.

Í kjölfarið hafa komið fram margar frásagnir á netinu, í bloggum og hefðbundnum fjölmiðlum, þar sem fyrrum nemendur Landakotsskóla og Riftúns, sumarbúða fyrir kaþólsk börn í Ölfusi, segja frá andlegu og líkamlegu ofbeldi skólastjórans og kennarans. Nú síðast stigu fram tvær nafngreindar konur sem sögðu einnig frá kynferðislegu ofbeldi af hálfu þessara aðila, en fram að því var frásögn nafnlausa mannsins í Fréttatímanum sú eina sem fjallaði um kynferðislegt ofbeldi þeirra. Almennt hefur þessum frásögnum verið vel tekið og þegar sagt var frá rúðubroti í biskupsbústað kaþólsku kirkjunnar við Landakotsskóla í kjölfar umfjöllunarinnar, fögnuðu flestir, sem tjáðu sig við fréttina á dv.is.

Þetta mál vakti mig til umhugsunar um annað mál, sem kom fram í fjölmiðlum fyrir fimm árum. Þá setti DV á forsíðu frásögn um ásakanir á hendur kennara á eftirlaunum, sem bjó úti á landi. Fréttin var byggð á frásögn tveggja pilta, sem ásökuðu kennarann um kynferðislegt ofbeldi. Nafn kennarans var birt ásamt mynd, en piltarnir voru nafnlausir í frásögn blaðsins. Málið var til rannsóknar hjá lögreglu á staðnum, en farið hafði fram húsleit hjá kennaranum. Sama dag og fréttin birtist í DV bárust fréttir af því að kennarinn fyrrverandi hefði svipt sig lífi. Samstundis braust fram mikil reiði í þjóðfélaginu í garð DV, sem var ásakað um að hafa „nánast rekið“ manninn í dauðann. Málinu lauk með því að báðir ritstjórar DV sögðu störfum sínum lausum. Ekki hefur meira heyrst opinberlega um rannsóknina á kærum piltanna.

Það er margt líkt með þessum tveimur málum. Í báðum tilfellum er um forsíðufréttir að ræða og birt eru nöfn og myndir af þeim sem ásakaðir eru. Hvorugt málið hafði farið fyrir dómstóla þegar sagt var frá þeim, en þau höfðu bæði verið kærð til lögreglu. Í báðum fréttunum var upphaflega byggt á nafnlausum frásögnum tveggja karlmanna. Hægt er að segja að í báðum blöðum hafi að einhverju leyti verið farið niðrandi orðum um meinta gerendur. Í Fréttablaðinu er þýska kennslukonan kölluð „kerlingin“ í beinni tilvitnun í fyrrum nemanda hennar, en í DV var kennarinn fyrrverandi kallaður „einhentur kennari“ í forsíðufyrirsögn, sem var svo sem sannleikanum samkvæmt en kannski ekki mjög jákvæð nálgun.

Annað málið endaði með harmleik, afsögnum og almennri fordæmingu samfélagsins í garð blaðsins sem birti fréttina. Jafnvel töluðu stjórnmálamenn um morð og að herða þyrfti löggjöf um meiðyrði. Hitt málið fær almennt jákvæðar viðtökur, þó að örfáir tali um múgæsingu og álíka. Ég velti því fyrir mér hvar munurinn liggur. Er það vegna þess að gerendurnir í Landakotsmálinu voru útlendingar? Erum við tilbúnari til þess að hlusta á frásagnir þolenda kynferðisofbeldið eftir hrunið og uppgjörið við það, vegna frásagnanna frá Breiðuvík árið 2007, eða eftir margfræg biskupsmál sem verið er að gera upp í lútersku kirkjunni þessa dagana? Hefði DV fréttin talist í lagi ef maðurinn hefði ekki framið sjálfsmorð? Eða er það einfaldlega svo að við þolum bara umfjöllun um látna barnaníðinga, en ekki lifandi?


Því meðan til er böl sem bætt þú gast

og barist var á meðan hjá þú sast

er ólán heimsins einnig þér að kenna

Tómas Guðmundsson
  • Myndasíðan mín
  • Ísland
  • Hundalíf
  • Palestína
  • www.flickr.com
    This is a Flickr badge showing public photos from farfuglinn. Make your own badge here.
  • Gönguferð á sandi

  • Harpa
  • Hildigunnur
  • Nanna
  • Þórdís
  • Telma
  • Afi
  • Alla
  • Anna
  • Antík
  • Arngrímur
  • Ásta
  • Baun
  • Beta
  • Bókvit
  • Einar J.
  • Ella Stína
  • Elías
  • Erla
  • Erna
  • Erna E.
  • Guðný Anna
  • Gunnar Hrafn
  • Gurrí
  • Gvendarbrunnur
  • Hanna litla
  • Harpa Hreins
  • Heiða B.
  • Hildur
  • Hreinn
  • Hryssa
  • Hugskot
  • Ibba Sig.
  • Ingibjörg
  • Kalli
  • Kisuvinur
  • Kitta
  • Kókó
  • Launsátur
  • Lilja
  • Ljúfa
  • Matti
  • Ólöf Jakobína
  • París
  • Silja
  • Snilldur
  • Steingerður
  • Svanurinn
  • Teitur
  • Tóta litla
  • Vélstýran


  • Locations of visitors to this page
  • Global voices
  • OneVoice Movement
  • Palestine blogs

  • Fésbókin
  • Myndasíða Hörpu
  • Parísardaman
  • Brall í bauk
  • Hugarflug
  • Hugsandi
  • Ísland-Palestína
  • Name:
    Location: Iceland

    Eilífðarstúdent, íbúðareigandi, yngri systir, dramadrottning, lestrarhestur, bíómyndafíkill og áhugamanneskja um ferðalög með meiru. Lönd sem ég hef komið til Evrópulönd sem ég hef heimsótt Bandarísk fylki sem ég hef komið til

    Powered by Blogger

    -->