Annáll ársins 2010
Að mörgu leyti var árið 2010 gott ár hjá mér og mínum, þó að það væri líka erfitt á köflum. Þjóðin fékk enn eitt viðburðaríkt ár, með öllu sem því fylgdi. Forsetinn byrjaði árið á því að synja Icesave-lögum um staðfestingu og síðan voru þau felld í þjóðaratkvæðagreiðslu, en stjórnin féll samt ekki.
Sveitarstjórnarkosningar fóru fram um allt land og hér í Kópavogi rættist langþráður draumur þegar meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks féll, en í staðinn kom stjórn fjögurra flokka þar sem Samfylkingin var stærsti flokkurinn. Annars var þetta ár nýrra framboða í pólitíkinni. Nýstofnaður Besti flokkur fékk sex borgarfulltrúa og borgarstjórastólinn í borginni, L-listi óháðra fékk hreinan meirihluta á Akureyri og í Kópavogi fengu tvö ný framboð sinn manninn hvort.
Engar urðu utanlandsferðirnar hjá mér á þessu ári, en ég flutti aftur í litlu íbúðina með garðinum og það var á við hina bestu sumarleyfisferð að koma hingað aftur. Ég var svo heppin að fá sumarvinnu við þýðingar hjá Háskóla Íslands eftir mikla leit og í haust fékk ég síðan skemmtilega vinnu á lögfræðiskrifstofu þar sem þýðingar og samskipti við erlenda viðskiptavini eru efst á baugi. Einnig skellti ég mér í nám (já, enn ein námsbrautin!) og mun vonandi útskrifast úr námi í kennslufræðum með kennsluréttindi næsta vor.
Systursonur minn, sem eitt sinn var fótboltadrengur, hóf nám í menntaskólanum á Laugavatni í haust og er orðinn hávaxinn menntaskólanemi sem bráðum fær bílpróf. Sálfræðineminn fyrrverandi, sem nú er nemi í næringarfræði, eignaðist sitt annað barn í byrjun desember. Það var lítill drengur sem kallaður er Snúður, en hann var aðalstjarnan í fjölskylduboðinu á annan í jólum. Yngsta systirin í hópnum er svo orðin tólf ára skutla með áhuga á snyrtivörum, sem er merkilegt þar sem mér finnst vera örstutt síðan hún sat í rauðum galla í barnavagni á Flateyri. En svona er lífið, þó að ég sé alltaf 29 ára (alla vega í anda).
Gleðilegt ár og megi vonir, draumar og væntingar rætast á árinu 2011!

<< Home