Listinn 2010

Þá er þessi tími ársins kominn og gott betur. Ég hélt upp á afmælið mitt með góðum vinkonum og fékk margar góðar gjafir, eins og lampa, kerti, bók, geisladisk, hvítvín og púða fyrir fartölvu. Allt hlutir sem nýtast mér vel. En jólin eru eftir og systir spurði mig um daginn hvort að ég yrði ekki með einhvern óskalista í ár. Svo að ég ákvað að leggja í hann þó að afmælið mitt sé liðið.
Í fyrra vildi ég meðal annars fá dúnsokka og sú ósk rættist, þannig að nú er mér aldrei kalt á tánum. Mig langaði líka í stofuborð úr eik og á endanum keypti ég mér eitt slíkt á útsölu sl. vor. Ég flutti aftur í íbúðina með sérgarðinum og skellti parketi á herbergin, þannig að þar rættist gamall draumur. Nú, Samfylkingin komst svo í meirihluta bæði í borg og Kópavogsbæ í vor.
Hér kemur óskalistinn fyrir 2010
Fyrst eru það draumórarnir:
1. Nýja eldhúsinnréttingu.
2. Flísar á eldhúsið og forstofuna.
3. Fallegan og stóran pall við íbúðina með garðinum.
4. Borðstofuborð úr eik og leðurstólar. Er núna með skrifborð og eldhússtóla.
5. Ferð til útlanda. Í febrúar verða liðin tvö ár frá því að ég komst frá klakanum síðast.
6. Afskriftir húsnæðis- og bílalána (já, það má láta sig dreyma).
7. Rykuguvélmenni og skúringavélmenni.
8. Lausn á Icesave.
9. Ísland í ESB.
10. Frið á jörð.
Svo er það sæmilega raunhæfi listinn:
11. Bækur, bækur, bækur.
12. Gólflampa, sá einn mjög flottan í Byko.
13. Einhvern skemmtilegan geisladisk, til dæmis Muse.
14. Langar enn í flass á myndavélina, þó að það kosti hönd og fót.
15. Langar líka enn í prentara eða fjölnotatæki, til að geta prentað út heima.
16. Það er svolítið 2007, en mig langar samt alltaf í Gogga.
17. Frábært að fá trefla, húfur eða annað prjónadót.
18. Elska Body shop baðvörur og krem.
19. Kápu og leðurstígvél.
20. Góðan DVD.

<< Home