sunnudagur, september 26, 2010

Mörg úrræði í boði, en...

light

Nýlega kynnti ég mér þá möguleika sem fólki í greiðsluerfiðleikum stendur til boða. Stjórnvöld hafa leitt í lög ýmis úrræði og skrifað undir samninga við fjármálastofnanir um önnur. Þessi úrræði hafa hins vegar ekki verið neitt sérstaklega vel kynnt og það tekur satt að segja nokkurn tíma að afla upplýsinga frá hinum ýmsu stofnunum og bönkum um þær leiðir sem eru í boði. Nú eru bráðum tveir mánuðir síðan umboðsmaður skuldara tók við embætti og það hefði kannski einhver búist við því að embættið færi strax af stað með öfluga kynningarherferð á úrræðum fyrir einstaklinga, en enn hefur það ekki gerst.

Í apríl 2009 undirrituðu viðskiptaráðherra og félags- og tryggingamálaráðherra ásamt Íbúðalánasjóði samkomulag við fjármálastofnanir um beitingu greiðsluerfiðleikaúrræða vegna fasteignaveðlána, þar sem fram kemur að "lántakandi geti óskað eftir frestun á greiðslu afborgana, að hluta eða fullu, og vaxta og verðbóta, eftir atvikum, í allt að eitt ár í senn og með möguleika á framlengingu í samtals allt að þrjú ár." Þetta ákvæði ætti að vera mörgum atvinnulausum með fasteignalán til hagsbóta, en í fréttum í ágúst sl. kom fram að 4000 manns hefðu verið atvinnulausir í meira en ár. Auk þeirra hafa margir sem misstu vinnuna aðeins fengið hlutastörf og/eða láglaunastörf í staðinn fyrir fyrra starf, með lítið brot af þeim launum sem þeir höfðu fyrir hrun.

Frumskilyrði fyrir því að fá frestun á afborgunum húsnæðislána eða önnur úrræði samkvæmt samkomulaginu, er að greiðsluerfiðleikarnir stafi af óvæntum tímabundnum erfiðleikum vegna veikinda, slysa, minni atvinnu, atvinnuleysi eða "öðrum ófyrirséðum atvikum". Þetta á auðvitað við um þau fjögur þúsund sem eru langtímaatvinnulaus, auk allra hinna sem hafa farið niður í lækkað starfshlutfall eða lækkað í launum í kjölfar kreppunnar. Þetta hljómar ágætlega og frysting í eitt til þrjú ár ætti að hjálpa mörgum yfir erfiðasta hjalla kreppunnar. Framkvæmdin er hins vegar önnur.

Bankarnir veita fæstir frestun á afborgunum húsnæðislána lengur en í þrjá eða sex mánuði í senn, og yfirleitt er slík frysting ekki veitt lengur en í hálft til eitt ár alls. Ég veit um fólk sem hefur þurft að sækja um frystingu á þriggja mánaða fresti til bankans og aðra sem hafa fengið höfnun á frekari frystingu eftir hálft ár, þrátt fyrir áframhaldandi atvinnuleysi og lágar tekjur. Meira að segja Íbúðalánasjóður er hættur að frysta lán í meira en eitt ár nema í undantekningartilfellum. Þannig að árin þrjú eru í raun bara stafir á blaði, sem gagnast fáum. Þarna er um að ræða breytingu á vinnulagi Íbúðalánasjóðs, sem á árum áður veitti oft frestun á afborgunum lána í tvö eða þrjú ár.

Því miður þýðir lítið að kvarta til félags- og tryggingamálaráðuneytisins eða viðskiptaráðuneytisins, vegna þess að lánastofnanir séu ekki að virða samkomulagið. Samkomulagið virðist ekki vera bindandi, vegna þess að orðalagið "allt að eitt ár í senn" og "allt að þrjú ár" er hæfilega loðið til þess að binda ekki hendur fjármálastofnana. Einnig segir í upphafi textans að: "Samkvæmt samkomulagi þessu skulu lánveitendur fasteignaveðlána leitast við að tryggja lántakendum eftirtalin greiðsluerfiðleikaúrræði..." sem þýðir líka að samkomulagið er í raun háð geðþótta viðkomandi fjármálastofnunar.

Þannig að þetta samkomulag gagnast í raun aðeins þeim sem eru svo heppnir að fá vel launaða vinnu strax aftur, eða í síðasta lagi innan hálfs árs eða árs frá atvinnumissi. Öllum öðrum er ýmist beint í sértæka skuldaaðlögun eða greiðsluaðlögun, vilji þeir forðast gjaldþrot og uppboð á húsnæði sínu. En því miður eru stórir gallar á framkvæmd þeirra úrræða líka, eins og ég mun koma inn á í næstu pistlum.


Því meðan til er böl sem bætt þú gast

og barist var á meðan hjá þú sast

er ólán heimsins einnig þér að kenna

Tómas Guðmundsson
  • Myndasíðan mín
  • Ísland
  • Hundalíf
  • Palestína
  • www.flickr.com
    This is a Flickr badge showing public photos from farfuglinn. Make your own badge here.
  • Gönguferð á sandi

  • Harpa
  • Hildigunnur
  • Nanna
  • Þórdís
  • Telma
  • Afi
  • Alla
  • Anna
  • Antík
  • Arngrímur
  • Ásta
  • Baun
  • Beta
  • Bókvit
  • Einar J.
  • Ella Stína
  • Elías
  • Erla
  • Erna
  • Erna E.
  • Guðný Anna
  • Gunnar Hrafn
  • Gurrí
  • Gvendarbrunnur
  • Hanna litla
  • Harpa Hreins
  • Heiða B.
  • Hildur
  • Hreinn
  • Hryssa
  • Hugskot
  • Ibba Sig.
  • Ingibjörg
  • Kalli
  • Kisuvinur
  • Kitta
  • Kókó
  • Launsátur
  • Lilja
  • Ljúfa
  • Matti
  • Ólöf Jakobína
  • París
  • Silja
  • Snilldur
  • Steingerður
  • Svanurinn
  • Teitur
  • Tóta litla
  • Vélstýran


  • Locations of visitors to this page
  • Global voices
  • OneVoice Movement
  • Palestine blogs

  • Fésbókin
  • Myndasíða Hörpu
  • Parísardaman
  • Brall í bauk
  • Hugarflug
  • Hugsandi
  • Ísland-Palestína
  • Name:
    Location: Iceland

    Eilífðarstúdent, íbúðareigandi, yngri systir, dramadrottning, lestrarhestur, bíómyndafíkill og áhugamanneskja um ferðalög með meiru. Lönd sem ég hef komið til Evrópulönd sem ég hef heimsótt Bandarísk fylki sem ég hef komið til

    Powered by Blogger

    -->