Listinn 2009
Tíminn líður hratt og allt í einu er þessi tími kominn aftur. Afmæli, jól og allur sá pakki. Reyndar verður nóvember mjög menningarlegur hjá mér, því ætlunin er að fara á Ástardrykkinn í Óperunni, Brennuvargana í Þjóðleikhúsinu og óperubíó, allt í sama mánuðinum. En þrátt fyrir menningargnótt er líka gaman að fá pakka.
Í fyrra vildi ég m.a. fá sjónvarpsskáp úr eik, ferðaheilsukodda og bækur, en allt þetta fékk ég í jólagjöf. Já, og Davíð fór úr Seðlabankanum. Annað varð að bíða betri tíma. Kannski er sá tími kominn núna.
Hér kemur óskalistinn fyrir 2009
Fyrst eru það draumórarnir:
1. Sólarlandaferð til Tenerife eða einhvers álíka staðar.
2. Stofuborð úr eik. Sá eitt flott í Ikea og annað í Ego dekor.
3. Borðstofuborð úr eik og leðurstólar. Seldi gamla settið á Akureyri.
4. Ferð til Parísar og ekki væri verra ef einhver góð hljómsveit væri að spila.
5. Nú stendur til að ég flytji aftur í íbúðina mína á næsta ári og parket er enn á listanum.
6. Samfylkinguna í meirihluta í borginni og í bæjarstjórn Kópavogs næsta vor.
7. Fallegan og stóran pall við íbúðina með garðinum.
8. Rykuguvélmenni og skúringavélmenni líka.
9. Ísland í ESB.
10. Frið á jörð.
Svo er það sæmilega raunhæfi listinn:
11. Bækur, bækur, bækur og fleiri bækur.
12. Loðfóðraðir leðurhanskar. Já, mig vantar þá enn.
13. Dúnsokkar eru enn ofarlega á lista og nú fást ódýrir í Ikea.
14. Millenium myndirnar eða annað skemmtilegt á DVD.
15. Gjafabréf á snyrtistofu eða í nudd, t.d Mecca Spa.
16. Flass á Canon myndavélina.
17. Eyrnalokkar og hálsmen.
18. Prentari/fjölnotatæki.
19. Snyrti- og baðvörur.
20. Goggi.

