Lífið á túndrunni

Lífið hér á hjaranum hefur gengið sinn vanagang að mestu undanfarnar vikur, og það þó að Vanity Fair tímaritið segi Ísland vera gjaldþrota og íbúana hressilega skyldleikaræktaða. Við voffilíus erum þó orðin ansi leið á snjónum, sem hefur varla haggast frá því um jólin. Kannski er það samt bara ég sem er leið, þar sem litli heimskautahundurinn er alltaf jafn duglegur í gönguferðunum. Ég reyndi þó að hressa aðeins upp á tilveruna fyrir hálfum mánuði, þegar ég ákvað að taka þátt í prófkjöri. Ég vissi auðvitað sem var, að sem AA (aðfluttur Akureyringur) og SAS (sérfræðingur að sunnan) með ekkert kosningabandalag við neinn ætti ég sennilega ekki mikla möguleika. Ég ákvað samt að láta slag standa, svona einu sinni á ævinni. Ég fór líka að moggablogga og hver veit nema ég haldi því áfram, þar sem ég fæ þar ákveðna útrás fyrir mínar pólitísku frústrasjónir og nördalegan áhuga á hagfræði. Prófkjörinu lauk í dag og árangurinn var satt að segja ekki beysinn. En á móti hef ég endurheimt frelsið til þess að segja það sem mér dettur í hug, þegar mér dettur það í hug. Það er mikils virði.

<< Home