Lag sumarsins
Í tilefni af því að haustið er að koma ætla ég að setja hér inn lagið sem ég hef hlustað á í allt sumar, allt frá því að ég keypti það í bresku itunes búðinni i júní, rétt eftir að það kom út. Lagið hefur fylgt mér til Strassborgar og Krítar, í höll sumarlandsins og hingað á hjara veraldar. Þessa dagana heyri ég það líka hljóma í útvarpinu, þar sem það er vinsælt á poppstöðvunum.
Mér fannst pínulítið fyndið þegar sjónvarpið spilaði þetta lag undir myndum af heimkomu íslenska handboltaliðsins á dögunum, þar sem texti lagsins fjallar um mann sem hefur tapað öllu. En kannski hafa starfsmenn sjónvarpsins bara heyrt orðin "rule the world" og fundist þau hæfa liðinu sem vann silfur á Ólympíuleikunum. Ég hef séð alls konar túlkanir á textanum, eins og þær að hann fjalli um Napóleon, George Bush, einkalif söngvarans, eiturlyfjaneyslu og kaþólsku kirkjuna. Lagið minnir mig á ýmislegt, bæði fólk og staði. Til dæmis sé ég fyrir mér Jerúsalem og Róm, en líka þennan stað, sem í mínum huga er hálfgerð táknmynd fyrir margt það sem sungið er um í laginu.

