sunnudagur, desember 30, 2007

Flóð

Regn, regn og meira regn. Þegar við voffilíus fórum út seinnipartinn var rigningin búin að skola burt öllum hvíta jólasnjónum úr húsagörðum og af gangstéttum. Kópavogslækurinn var orðinn að heilmikilli á og við gegnum fram á fólk úr björgunarsveitum sem var að dæla vatni úr bílakjöllurum. Andapollurinn við Hafnarfjarðarveg var líkari stöðuvatni og litla garðhýsið þar maraði í hálfu kafi. Voffilíus bar sig bara vel í rigningunni, en því miður var of dimmt og mikið rok til þess að ég næði almennilegum myndum af vetrarleysingunum. Kannski að ég reyni aftur á morgun.

þriðjudagur, desember 25, 2007

Jóladagur

Christmas day
Snemma í dag var gullfallegur jólasnjór yfir öllu. Eftir hádegið fór aðeins að hvessa og þá var þessi mynd tekin.

mánudagur, desember 24, 2007

Gleðileg jól

Christmas market
Jólatré. Jólapakkar. Jólasnjór. Grenigreinar í vasa. Ilmurinn af hamborgarahrygg. Púrtvín. Jólakjólar og jakkaföt. Logandi kerti. Í dag er glatt í döprum hjörtum. Já, það eru svo sannarlega komin jól. Megið þið njóta þeirra í faðmi fjölskyldu og ástvina.

laugardagur, desember 22, 2007

Ljóskustund

Ég kom fljúgandi til höfuðborgarinnar í gærkvöldi og verð hér fram á nýja árið. Um miðjan daginn í gær ákvað ég að skoða rafræna flugmiðann minn, sem ég bókaði fyrir mörgum vikum. Það kom mér vægast sagt í opna skjöldu að ég átti bókað flug aftur til norðurpólsins að kvöldi 2. janúar. Ég velti því lengi fyrir mér hvernig stæði á því að ég hefði bókað flugfar á þessum tíma, en ekki snemma um morguninn eins og venjulega. Átti ég pantaðan tíma hjá lækni annan dag janúarmánaðar? Ætlaði ég að gera eitthvað í bænum? Var kannski bókaður fundur í Reykjavík? Ekkert slíkt var skráð í dagbókina og ég skildi hreinlega ekki hvað ég hafði verið að hugsa. Svo rifjaðist þetta loksins upp fyrir mér. Ég hafði bókað flugið á netinu og stuðst við dagatalið í tölvunni, sem ekki sýnir neina frídaga. Við erum með lokað á milli jóla og nýárs, þannig að ég fór að reikna út hvenær ég yrði að fljúga til baka. Ekki þann 31. því að þá er gamlársdagur. Ekki 1. janúar, því að þá er nýársdagur. Ekki 2. janúar, því að þá er annar í nýári. Ég gerði sem sagt ráð fyrir því að koma aftur til starfa 3. janúar. Ég er innilega þakklát starfsmönnum Flugfélags Íslands fyrir aðstoðina við að leiðrétta klúðrið.

þriðjudagur, desember 18, 2007

Myndband ársins



Tvímælalaust jólalag ársins 2007. Baggalútur hvað?

sunnudagur, desember 16, 2007

Jólajóla

Jólahús
Eins og margir aðrir átti ég bókað innanlandsflug síðastliðinn föstudag. Ekkert var flogið, þannig að ég eyddi helginni hér á hjara veraldar í stað þess að fara á tjúttið með markaðsstjóranum, upplýsingafulltrúanum, aðjúnktinum og fjölmiðlastjörnunni. Svona er lífið. Reyndar var alveg ágætt að fá eina rólega helgi án ferðalaga, svona til tilbreytingar. Ég notaði tækifærið og gróf jólaskraut upp úr kössum. Mikið af skrautinu mínu passar samt ekki hér, þar sem gluggarnir á leiguíbúðinni eru af annarri stærð en heima. Við voffilíus fórum í bæinn í gær og hann urraði á tvær konur, litla villidýrið. Aldrei þessu vant var fólk í miðbæ Akureyrar og verslanir opnar frameftir. Svona ætti það að vera allar helgar.

fimmtudagur, desember 13, 2007

Blaut helgi í París

Wet weekend in Paris
Ég fór til Strassborgar í síðustu viku og eftir það eyddi ég helginni í París. Strassborg er mikil jólaborg og fagurlega skreytt í desember, auk þess sem jólamarkaðir draga að sér ferðamenn. París var kannski ekki alveg eins jólaleg, en þó var virkilega fallegt að labba niður Champs Elysees og horfa á ljósum prýdda röð trjáa meðfram götunni. Ég heimsótti líka verslunarmiðstöðina Galeries Lafayette og skoðaði jólaskreytingar þar, auk þess sem ég keypti tvær jólagjafir. Fór svo í H&M en hrökklaðist þaðan út undan dónalegu afgreiðslufólki. Þeirra tap. En allra skemmtilegast var að hitta Parísardömuna og fara með henni í tvo frábæra göngutúra, um Latínuhverfið og Mýrina. Svo fórum við út að borða á laugardagskvöldið, sem var virkilega gaman. Ég vona að þetta hafi ekki rústað prófunum hjá henni. Vegna yfirbókana fékk ég að prófa fjögur hótel í ferðinni og svo týndi ég ipodinum mínum, en þetta var samt vel heppnuð ferð.

þriðjudagur, desember 04, 2007

Vetrarríkið

Winter bell
Mér leist ekki á blikuna þegar ég lenti hér á hjara veraldar í gærkvöldi. Götur í Reykjavík og Strassborg voru auðar, en í höfuðstað Norðurlands var snjór hvert sem litið var. Bíllinn minn var falinn undir nettu snjófjalli og ég þurfti að nota sköfuna sem ísexi til að ná snjónum af. Á tímabili var ég alveg að hugsa um að gefast upp, taka bara leigubíl frá flugvellinum og geyma bílinn. En ég þrjóskaðist við og þetta tókst á endanum. Hér er víst búið að vera mjög rysjótt veður og talsvert um árekstra. En við voffilíus komumst klakklaust í gegnum daginn og nú liggur leiðin suður aftur, burt frá vetrarríkinu. Í fyrramálið fer ég til Frakkaríkis og um helgina heimsæki ég Parísardömuna margfrægu í hennar eigin borg.

laugardagur, desember 01, 2007

Franskir dagar

Ég flaug út til Frakklands á afmælisdaginn minn. Ekki þó í skemmtiferð, heldur til þess að vinna. Þetta var önnur ferðin mín til Frankaríkis á þessu ári, en ekki sú síðasta. Í þessum ferðum hefur komið átakanlega í ljós að ég kann eiginlega ekkert í frönsku. Ég kann varla að segja neitt nema "bonjour" og "merci". Jú, ég get beðið einhvern um að teikna fyrir mig kind, en hef ekki enn lent í þeim aðstæðum þar sem sú kunnátta gæti komið að gagni. Kannski ef ég færi á landbúnaðarþing í frönskumælandi landi. Þegar ég hlustaði á fréttirnar í franska útvarpinu hljómuðu þær svona: "bla bla bla Nicholas Sarkozy bla bla bla París bla bla bla slys bla bla bla fjölskyldan bla bla bla foreldrar fórnarlambsins bla bla bla Pakistan bla bla bla Musharraf bla bla bla..." Ég vissi nokkurn veginn um hvað fréttirnar fjölluðu, en bara vegna þess að ég hafði horft á þær á CNN og BBC kvöldið áður. Tvö og hálft ár í frönsku í menntaskóla og ég get ekki sagt að tíma mínum hafi verið vel varið.


Því meðan til er böl sem bætt þú gast

og barist var á meðan hjá þú sast

er ólán heimsins einnig þér að kenna

Tómas Guðmundsson
  • Myndasíðan mín
  • Ísland
  • Hundalíf
  • Palestína
  • www.flickr.com
    This is a Flickr badge showing public photos from farfuglinn. Make your own badge here.
  • Gönguferð á sandi

  • Harpa
  • Hildigunnur
  • Nanna
  • Þórdís
  • Telma
  • Afi
  • Alla
  • Anna
  • Antík
  • Arngrímur
  • Ásta
  • Baun
  • Beta
  • Bókvit
  • Einar J.
  • Ella Stína
  • Elías
  • Erla
  • Erna
  • Erna E.
  • Guðný Anna
  • Gunnar Hrafn
  • Gurrí
  • Gvendarbrunnur
  • Hanna litla
  • Harpa Hreins
  • Heiða B.
  • Hildur
  • Hreinn
  • Hryssa
  • Hugskot
  • Ibba Sig.
  • Ingibjörg
  • Kalli
  • Kisuvinur
  • Kitta
  • Kókó
  • Launsátur
  • Lilja
  • Ljúfa
  • Matti
  • Ólöf Jakobína
  • París
  • Silja
  • Snilldur
  • Steingerður
  • Svanurinn
  • Teitur
  • Tóta litla
  • Vélstýran


  • Locations of visitors to this page
  • Global voices
  • OneVoice Movement
  • Palestine blogs

  • Fésbókin
  • Myndasíða Hörpu
  • Parísardaman
  • Brall í bauk
  • Hugarflug
  • Hugsandi
  • Ísland-Palestína
  • Powered by Blogger

    -->