þriðjudagur, ágúst 28, 2007

Sumarið er tíminn

Smile like you mean it
Veðrið er búið að leika við okkur hér á hjara veraldar undanfarna daga. Sólin skein í heiði í dag og við vinnufélagarnir fórum niður í bæ í hádeginu. Kíktum aðeins inn í nýju búðina hjá Frúnni í Hamborg og í bókabúðina. Á svona dögum ætti fólk að vera úti á sjó á seglbát eða heima í garði, en ekki inni á skrifstofu. Reyndar er spáð rigningu næstu daga, en það gerir ekkert til þar sem ég er að fara í heimsókn til Sódómu. Það er samt ekki komið h****. Bara svo það sé á hreinu.

sunnudagur, ágúst 26, 2007

Sjö

"Sex daga skalt þú erfiða og vinna allt þitt verk, en sjöundi dagurinn er hvíldardagur helgaður Drottni Guði þínum. Þá skalt þú ekkert verk vinna." Við voffilíus höfum farið samviskusamlega eftir þessu í dag, fyrir utan smá þvott sem varla er hægt að kalla vinnu. Núna erum við líka búin að vera í rúmlega sjö mánuði á Akureyri. Ekki veit ég hvernig fólk fer að þessu. En við förum suður í næstu viku og verðum í fjóra daga.

mánudagur, ágúst 20, 2007

Menningarhelgi


Við voffilíus fórum suður um helgina og nutum menningarinnar í höfuðborginni. Í þetta sinn var flogið og því gat Blönduóslöggan ekki náð í skottið á okkur. Ég hitti fröken Rockefeller og Grafarvogsbúana í miðbænum á laugardagskvöldið. Við fengum okkur bita á Thorvaldsen og fórum svo á tónleikana á Miklatúni. Eftir tónleikana fórum við niður á Sæbraut og sáum flugeldasýningu Orkuveitunnar. Flugeldasýningin var enn flottari en í fyrra, sem er afrek út af fyrir sig. Í gærkvöldi dró ég svo Svaninn á Simpsons myndina í bíó. Ég hef alltaf haft gaman af Simpson fjölskyldunni, enda sá ég fyrsta þáttinn í fullri lengd þegar hann var sýndur í Bandaríkjunum veturinn 1989. Við Simpson fjölskyldan eigum það líka sameiginlegt að líta ekki út fyrir að vera deginum eldri en fyrir 18 árum, eða þannig. Þrátt fyrir unglegt útlit tókst mér að verða sárlasin í dag. Vonandi gengur það fljótt yfir.

mánudagur, ágúst 13, 2007

Blönduóslöggan býsna snögg

Á meðan aðrir landsmenn gengu niður Laugaveginn í latexbúningum eða svolgruðu í sig fiskisúpu í lítravís, lögðum við voffilíus land undir dekk og héldum austur fyrir fjall. Ferðinni var heitið í sumarhöllina, en þar hefur mútter haldið sig undanfarna daga. Frúin átti afmæli á laugardaginn og við komum henni á óvart með afmælisköku og blómum. Á laugardagskvöldið fór ég svo með Svaninum á ball með Millunum á Broadway, sem var mjög skemmtilegt þó að fleira fólk hefði mátt vera á staðnum. Við náðum að fara í góða gönguferð í sólinni í Kópavogsdalnum og kíkja í nokkrar búðir á sunnudeginum, áður en tími var til kominn til þess að leggja af stað aftur norður. Allt gekk vel þar til við vorum komin nálægt óðali feðranna í Húnavatnssýslunni. Þrátt fyrir gríðarlega varkárni og hreina ökuferilsskrá í meira en áratug, tókst mér að gleyma mér eitt augnablik. Ég áttaði mig á því að hraðamælirinn var kominn yfir 90 og hægði snarlega á mér, en allt kom fyrir ekki. Mér tókst að verða að færslu í bókhaldi ofvirku Blönduóslöggunnar. Næst ætla ég að fljúga.

mánudagur, ágúst 06, 2007

Góðir gestir

Vinir
Við voffilíus fengum góða gesti í heimsókn nú um verslunarmannahelgina. Heimskonan, maður hennar og dóttir komu og gistu hjá okkur í tvær nætur. Við fórum í sund, kíktum á skemmtiatriði í miðbænum og heimsóttum tívolíið sem er staðsett hér norðan heiða þessa dagana. Í gærkvöldi fórum við á lítinn veitingastað úti í sveit og borðuðum frábæran mat. Ég kom nógu snemma aftur í bæinn til að sjá flugeldana sem mörkuðu endalok Einnar með öllu. Flugeldasýningin var flott þrátt fyrir smá óhapp í lokin, en voffilíus kunni ekki að meta hávaðann. Kaupmenn hér á Akureyri eru víst reiðir vegna aldurstakmarkana bæjarstjórnar og ætla jafnvel ekki að halda hátíðina aftur að ári. Vonandi snýst þeim hugur, því frá mínum bæjardyrum séð var þetta mjög vel heppnuð hátíð og skemmtileg helgi.


Því meðan til er böl sem bætt þú gast

og barist var á meðan hjá þú sast

er ólán heimsins einnig þér að kenna

Tómas Guðmundsson
  • Myndasíðan mín
  • Ísland
  • Hundalíf
  • Palestína
  • www.flickr.com
    This is a Flickr badge showing public photos from farfuglinn. Make your own badge here.
  • Gönguferð á sandi

  • Harpa
  • Hildigunnur
  • Nanna
  • Þórdís
  • Telma
  • Afi
  • Alla
  • Anna
  • Antík
  • Arngrímur
  • Ásta
  • Baun
  • Beta
  • Bókvit
  • Einar J.
  • Ella Stína
  • Elías
  • Erla
  • Erna
  • Erna E.
  • Guðný Anna
  • Gunnar Hrafn
  • Gurrí
  • Gvendarbrunnur
  • Hanna litla
  • Harpa Hreins
  • Heiða B.
  • Hildur
  • Hreinn
  • Hryssa
  • Hugskot
  • Ibba Sig.
  • Ingibjörg
  • Kalli
  • Kisuvinur
  • Kitta
  • Kókó
  • Launsátur
  • Lilja
  • Ljúfa
  • Matti
  • Ólöf Jakobína
  • París
  • Silja
  • Snilldur
  • Steingerður
  • Svanurinn
  • Teitur
  • Tóta litla
  • Vélstýran


  • Locations of visitors to this page
  • Global voices
  • OneVoice Movement
  • Palestine blogs

  • Fésbókin
  • Myndasíða Hörpu
  • Parísardaman
  • Brall í bauk
  • Hugarflug
  • Hugsandi
  • Ísland-Palestína
  • Powered by Blogger

    -->