laugardagur, mars 31, 2007

Skynsemin sigraði

Til hamingju Hafnarfjörður! Það var mjótt á mununum, en hugsjónin sigraði fjármagnið í þessum harða slag. Hafnfirðingar sýndu og sönnuðu að bærinn þeirra er engin Raufarhöfn.

Þú hýri Hafnarfjörður sem horfir móti sól,
þó hraun þin séu hrjóstrug er hvergi betra skjól,
þinn fagri fjallahringur með fönn á efstu brún
og hamraborgir háar, á holti gróin tún.

Sér leikur létti blærinn við lága klettaströnd,
þar bærist fley á báru og blika seglin þönd.
Er dvína dagsins glæður og daprast geislatjöld,
þín gætir gamli Fjörður hin góðu máttavöld.

Fyrstu tölur úr Gaflarabæ

Fyrstu tölur úr Firðinum benda til þess að álverið verði fellt - naumlega. Þó er aldrei að vita, þar sem þetta er svo jafnt. Ég fékk uppsögn á leigusamningnum í dag og er því þyrst í jákvæðar fréttir. Gaflarar, þetta er í ykkar höndum. Verður bærinn ykkar þekktur fyrir umhverfisstefnu og fólk sem þorði að segja nei? Eða verður hann drullupollur, eins og segir í kvæðinu góða?

Farðu í rassgat, Raufarhöfn
rammi, fúli drullupollur.
Andskotinn á engin nöfn
yfir öll þín forarsöfn.

Þú ert versta víti jöfn
viðmót þitt er kuldahrollur.
Farðu í rassgat, Raufarhöfn
rammi, fúli drullupollur.

föstudagur, mars 30, 2007

30. mars

Það má með sanni segja að 30. mars sé slæmur dagur. Ekki er nóg með að Íslendingar hafi gengið í Atlantshafsbandalagið á þessum degi, með tilheyrandi hersetu í um hálfa öld, heldur var fjárans latínuskólinn að sigra í Gettu betur keppninni rétt áðan. Til að kóróna daginn er svo líklega búið að selja íbúðina sem við voffilíus höfum búið í undanfarna tvo mánuði. Vonandi verður morgundagurinn betri.

Dugnaður

Ég fékk frest til að skila skattskýrslunni minni til marsloka, og í hádeginu í dag tókst mér að klára hana á innan við hálftíma og senda. Þetta er í fyrsta skiptið í nokkurn tíma sem ég skila skattframtalinu á réttum tíma. En ég var líka með einstaklega einfalt framtal í ár. Aðeins einn launagreiðandi, engir dagpeningar, engir bílapeningar og engin kaup eða sala á eignum. Með aukinni forskráningu er framtalið orðið svo lítið mál að það er hægt að ljúka þessu á nokkrum mínútum. Ég er samt svolítið stolt af mér að hafa klárað þetta tímanlega.

fimmtudagur, mars 29, 2007

Fær fjármagnið að ráða?

Nú eru bara tveir dagar í kosninguna um álverið í Hafnarfirði og Ísland í dag sendi beint út frá íbúafundi í Hafnarborg. Rúmlega 16000 manns eru á kjörskrá og allt er reynt til þess að ná til þeirra. Ég kíkti á Fjarðarpóstinn sem kom út í dag á netinu. Nær allt blaðið er lagt undir þessar tvísýnu kosningar. Þar kemur líka skýrt fram hvar fjármagnið liggur í þessum harða slag. Alcan er með forsíðuauglýsingu og heilsíðuauglýsingu inni í blaðinu. Þá er hagur Hafnarfjarðar einnig með heilsíðuauglýsingu inni í blaðinu, en þeir styðja stækkun. Auk þess er hagur Hafnarfjarðar með auglýsingu sem nær yfir stóran hluta baksíðunnar, og átta litlar auglýsingar víðs vegar um blaðið. Loks eru einhverjir, sem kallar sig framtíð Hafnarfjarðar, með heilsíðuauglýsingu, en þeir eru líka fylgjandi stækkun álversins. Á móti er Sól í Straumi með einn borða á forsíðunni og eina heilsíðuauglýsingu. Sem sagt, rúmlega fjórar síður af auglýsingum með stækkun, og rúmlega ein síða á móti stækkun. Ætli Hafnfirðingar láti kaupa sig til fylgilags við álverið, eða fær skynsemin að ráða?

mánudagur, mars 26, 2007

Örlagarík vika framundan

Þessi vika getur skipt sköpum í umhverfisvernd á Íslandi. Í lok vikunnar munu Hafnfirðingar kjósa um stækkun álvers, en skoðanakannanir sýna nauman meirihluta andstæðinga stækkunar. Framtíðarlandið heldur áfram að safna undirskriftum við sáttmála sinn um framtíð Íslands og baráttufólk í Hafnarfirði notar síðustu dagana til þess að fá fleiri til liðs við málstað umhverfisins. Þar er við ramman reip að draga, þar sem stórfyrirtækið Alcan eyðir miklu fé í kosningabaráttu sína og hefur meðal annars fengið forsætisráðherra landsins í lið með sér. Þetta hlýtur að vera uppáhaldslag Geirs og félaga þessa dagana:

Ó, þá náð að eiga álver,
einkavin í hverri þraut.
Ó, þá heill að halla mega
höfði sínu í álsins skaut.
Ó, það slys því hnossi að hafna,
hvílíkt fár á þinni braut,
ef þú blindur vilt'ei varpa
von og sorg í álsins skaut.

fimmtudagur, mars 22, 2007

Varamanneskjan

Af hverju er Ómar Ragnarsson formaður hins nýja flokks hægri grænna? Af hverju er Margrét Sverrisdóttir bara varaformaður? Hún hefur jú margfalt meiri reynslu í stjórnmálastarfi en hann. Svo hélt ég að flokkurinn væri stofnaður að hennar frumkvæði. Einhverjum finnst kannski að titlar skipti ekki máli, en þetta fer alveg hrikalega í taugarnar á mér. Hefði hlutverkaskipanin verið svona, ef að reyndi stjórnmálamaðurinn hefði verið karl og sjónvarpsmanneskjan kona? Hefði t.d. Sirrý sjálfkrafa orðið formaður flokks, ef hún hefði farið í framboð með einhverjum reyndum stjórnmálamanni? Ég hefði haldið að Margrét Sverris væri búin að fá nóg að því að vera varamanneskja. Hún er búin að vera varaborgarfulltrúi og varaþingmaður, auk þess sem hún bauð sig fram til varaformanns hjá Frjálslyndum en fékk ekki. Ekki veit ég hvort að þetta er lítilþægni hjá henni eða frekja í Ómari, en pirrandi er það.

mánudagur, mars 19, 2007

Tveir plúsar og einn mínus

Alþingi hefur lokið störfum sínum í bili og kosningabaráttan er að byrja af fullum krafti. Áður en þingi lauk um helgina voru tvö mikilvæg mál samþykkt, sem verða vonandi til þess að bæta stöðu barna og unglinga gagnvart kynferðisbrotamönnum. Í fyrsta lagi var fyrningarfrestur á kynferðisbrotum gegn börnum afnuminn og í öðru lagi var samræðisaldur hækkaður í 15 ár. Ég hefði reyndar viljað sjá hann hækkaðan í 16 ár, en allt er betra en ekkert. Að öðrum ólöstuðum á Ágúst Ólafur Ágústsson hrós skilið fyrir fjögurra ára baráttu gegn fyrningarfrestinum. Hins vegar var vændi lögleitt, eða svo til, sem mér finnst vera afturför. Það hefði verið betra að fara sænsku leiðina, þar sem kaup á vændi er bannað. Að minnsta kosti hefðu þurft að koma til einhver úrræði til þess að hjálpa vændiskonum, en ekkert slíkt var að finna í frumvarpinu eins og Atli Gíslason hefur bent á. Vonandi verður bætt úr þessu þegar ný ríkisstjórn tekur við eftir kosningar.

laugardagur, mars 17, 2007

Kveðja

Old house 2
Í þessu litla húsi ólust upp fjórar fallegar systur. Nú eru aðeins tvær eftir úr hópnum.

miðvikudagur, mars 14, 2007

Ofstopi í netheimum


Mesta fárið í kringum klámráðstefnumálið og Smáralindarmálið er búið, þó að Fréttablaðið reyni að halda því síðarnefnda í umræðunni. Reyndar fannst mér heilmargt við fréttaflutning Jakobs Bjarnars Grétarssonar að athuga og umfjöllun hans um klögumál "frú Kolbeins" langt frá því að vera fagleg eða hlutlaus, en það er önnur saga. Sumir netverjar hafa nálgast þessa umræðu á málefnalegan hátt, en mun fleiri hafa verið með upphrópanir og ofstopa. Guðbjörg Hildur Kolbeins, sem hóf umræðuna um Smáralindarbæklinginn, leyfir ekki ummæli á sinni bloggsíðu, en notendur á vísi.is hafa meðal annars sagt að hún "ætti að skammast sín", að hún sé haldin "öfund út í æsku ungra kvenna og fegurð" og að hún sé "klámhundur" sem þyrfti "að leita til heilbrigðisþjónustunnar". Jafnvel hefur verið kallað eftir því á netinu að hún verði rekin úr starfi sínu við Háskóla Íslands. Sóley Tómasdóttir var áberandi í umræðunni um klámráðstefnuna, en henni var m.a. líkt við fasista og nasista af lesendum Moggabloggsins, hún hefur verið kölluð lygari og "heilaþveginn þræll áróðurs", auk þess sem einn lesandinn sagði að "fátt hræddi hann meira" en sú staðreynd að Sóley skyldi ala upp börn. Nú þekki ég ekki þessar konur og er ekkert endilega sammála þeim, en mér finnst þessar árásir óhugnarlegar. Höfum við virkilega svona lítið umburðarlyndi gagnvart "óvinsælum" skoðunum? Fer fólk frekar út í persónulegar árásir á konur heldur en karla sem þora að tjá sig um umdeild málefni? Er hatur á femínistum svona útbreitt? Eða hvað?

þriðjudagur, mars 13, 2007

Helgarheimsókn

Við voffilíus heimsóttum höfuðborgarsvæðið nú um helgina og var það í fyrsta sinn eftir flutningana norður. Voffilíus er þrælvanur flughundur og lét ekkert í sér heyra þó að hann væri meðhöndlaður eins og farangur og settur á færiband. Við gistum hjá mútter og voffilíus var afskaplega glaður að koma þangað aftur. Hljóp um allt og gelti á nágrannana eins og hann er vanur. Á föstudaginn fór ég á Vegamót og hitti þar gott fólk yfir góðum mat. Þaðan var farið í fertugsafmæli, sem var mjög gaman. Ótrúlegt samt að ég skuli þekkja svona gamalt fólk! Á laugardagskvöldið fórum við ofurkennarinn í bíó, en það hef ég ekki gert síðan ég flutti hingað á hjara veraldar. Sunnudagurinn fór síðan í búðarráp og heimsóttum við mútter bæði sænsku stórverslunina og mína hjartkæru Smáralind. Við komum heim eldsnemma í gærmorgun og bíllinn beið á flugvellinum. Þetta verður vonandi endurtekið á næstunni.

sunnudagur, mars 11, 2007

Syndin er lævís og lipur


Á vinnustað mínum er sjálfsali nokkur, þar sem selt er gos og fleira. Síðastliðinn fimmtudag tölti ég niður á næstu hæð til þess að kaupa mér eðalveigar í vélinni góðu. Setti kort í þar til gerða rauf og beygði mig svo eftir drykknum. Þar sem ég beið eftir að dósin skilaði sér, gerði ég mér skyndilega grein fyrir skelfilegri aðstöðu minni. Ég var komin í velþekkta dónastellingu úr klámmyndum, stellingu sem hafði verið nákvæmlega skilgreind og gagnrýnd í fræðilegu bloggi daginn áður. Gott ef ég var ekki með opinn munninn af eftirvæntingu, þar sem kóladrykkurinn eftirsótti var í seilingarfjarlægð. Ég rétti úr mér í skyndi og vonaði að enginn hefði tekið eftir þessu. Ef ég hef hneykslað einhverja starfsmenn, nemendur eða gesti háskólans og nærliggjandi fyrirtækja, þá bið ég viðkomandi innilega afsökunar. Næst kem ég bara með kók að heiman.

fimmtudagur, mars 08, 2007

Öfgafemínistinn

Jæja, þá komst loksins upp um mig og mínar öfgafullu skoðanir. Til hamingju með daginn!





Revisionist
You scored 83% Gender-Abolitionist, 60% Sexually Liberal, and 60 % Socialist

You are the Revisionist Feminist! You are, by far, the most philosophical, the most sexually-liberated, and the most politically extreme variety of feminist. You are very, very freedom-oriented. You abhor oppression in all forms. For instance, your views on sexual liberation and reproductive control adequately reflect your devotion to personal freedom. Not only that, but you also feel gender needs to be destroyed to maximize equality and freedom, because accepting socially-constructed gender roles binds women into false categories and places upon them an unneeded identity. Gender should not be a part of one's identity, but rather an irrelevant aspect of their physical bodies, such as their hair length or nose shape. Not only that, but Revisionist Feminists are political extremists and feel very strongly that the oppression of class society is a big part of the cause of women's oppression. Basically, a Revisionist feels that cultural ideas of gender, political class, and repressive sexual morality all work together to oppress women, and the only way to truly escape this oppression is to challenge all of these problems directly and extremely. You are a Marxist, a Gender Abolitionist, and a Liberal Feminist all rolled into one.

Link: The Feminism Test written by saint_gasoline on OkCupid Free Online Dating, home of the The Dating Persona Test

miðvikudagur, mars 07, 2007

Hrakfallabálkurinn

Ég var ekki fyrr orðin laus við harðsperrurnar en mér tókst að slasa mig á ný. Undanfarið hefur verið rigning og frost til skiptis hér norðan heiða. Í gærmorgun var talsverð hálka og það varð til þess að ég datt á bílastæðinu, þegar ég var á leiðinni í vinnuna. Ég var að setjast inn í fína bílinn minn þegar ég rann á hálkubletti, missti fótanna og klemmdi vinstri fótinn einhvern veginn á milli stafs og hurðar á mjög klaufalegan hátt. Þannig að nú er ég tognuð og með bólginn fót, auk þess sem ég skarta glæsilegum marblettum. Það er eins gott að nú er hávetur, því að ég tæki mig ekki vel í stuttbuxum eða pilsi þessa dagana.

föstudagur, mars 02, 2007

Heilbrigð sál...

Þegar ég var á leiðinni hingað á hjara veraldar, reyndi ég að ímynda mér hvernig lífið yrði hér. Ég skoðaði á netinu það helsta sem var í boði í bænum, þar á meðal líkamsrækt. Eiginlega sá ég fyrir mér að ég yrði í frábæru formi eftir dvölina hér, þar sem ég þekkti fáa og hefði ekkert betra að gera en að hanga í ræktinni. Nú eru fimm vikur liðnar og í gær fór ég í fyrsta sinn inn á norðlenska líkamsræktarstöð. Við samstarfskona mín fórum í æfingabekki í hádeginu og púluðum þar undir leiðsögn kennara. Stöðin var fín og tíminn ágætur, en fljótlega eftir æfinguna fór ég að finna fyrir sperrum þeim sem venjulega eru kenndar við harð. Í nótt vaknaði ég svo með kvalir í bakinu og í morgun gat ég varla klætt mig. Já, íþróttir efla alla dáð. Það má nú segja.


Því meðan til er böl sem bætt þú gast

og barist var á meðan hjá þú sast

er ólán heimsins einnig þér að kenna

Tómas Guðmundsson
  • Myndasíðan mín
  • Ísland
  • Hundalíf
  • Palestína
  • www.flickr.com
    This is a Flickr badge showing public photos from farfuglinn. Make your own badge here.
  • Gönguferð á sandi

  • Harpa
  • Hildigunnur
  • Nanna
  • Þórdís
  • Telma
  • Afi
  • Alla
  • Anna
  • Antík
  • Arngrímur
  • Ásta
  • Baun
  • Beta
  • Bókvit
  • Einar J.
  • Ella Stína
  • Elías
  • Erla
  • Erna
  • Erna E.
  • Guðný Anna
  • Gunnar Hrafn
  • Gurrí
  • Gvendarbrunnur
  • Hanna litla
  • Harpa Hreins
  • Heiða B.
  • Hildur
  • Hreinn
  • Hryssa
  • Hugskot
  • Ibba Sig.
  • Ingibjörg
  • Kalli
  • Kisuvinur
  • Kitta
  • Kókó
  • Launsátur
  • Lilja
  • Ljúfa
  • Matti
  • Ólöf Jakobína
  • París
  • Silja
  • Snilldur
  • Steingerður
  • Svanurinn
  • Teitur
  • Tóta litla
  • Vélstýran


  • Locations of visitors to this page
  • Global voices
  • OneVoice Movement
  • Palestine blogs

  • Fésbókin
  • Myndasíða Hörpu
  • Parísardaman
  • Brall í bauk
  • Hugarflug
  • Hugsandi
  • Ísland-Palestína
  • Powered by Blogger

    -->