Framtíðarlandið
Síðastliðið sumar voru stofnuð samtök sem fengu nafnið Framtíðarlandið. Ég gerðist stofnfélagi ásamt tæplega 3000 öðrum, enda taldi ég að þarna væri verið að stofna þverpólitískt félag sem væri ætlað að leggja fram hugmyndir að nýrri framtíðarsýn á Íslandi , eins og segir á heimasíðu samtakanna. Níu manns skipa stjórn Framtíðarlandsins, sem mér skilst að hafa verið sjálfkjörin og jafnvel skipuð af þeim sjálfum til bráðabirgða, enda hefur enginn aðalfundur verið haldinn að mér vitandi. Í gær fékk ég tölvupóst frá Framtíðarlandinu, þar sem ég var boðuð á "spjallfund" með félagsmönnum. Þar á að ræða um "hugsanlegt framboð Framtíðarlandsins." Greinilegt er að aðstandendur Framtíðarlandsins eru að fjarlægjast upphaflegar hugmyndir um þverpólitískt félag. Í stað þess á að stofna enn einn stjórnmálaflokkinn. Ef stofnun flokks verður ofan á held ég að Framtíðarlandið hafi misst af mikilvægu tækifæri. Tækifæri til þess að fá fólk úr ólíkum áttum og öllum flokkum til þess að vinna saman að bjartari framtíð.





