Árið

Árið 2006 er að ljúka göngu sinni. Ýmislegt hefur gerst á þessu ári, bæði gott og slæmt. Ég skipti um vinnu, sem varð til þess að ég læknaðist endanlega af blaðamannabakteríunni sem hefur herjað á mig af og til undanfarin 25 ár. Svo átti ég stórafmæli, sálfræðineminn eignaðist litla stelpu og systir flutti á Suðurlandið. Halldór hætti, herinn fór, hvalveiðar hófust og Hálsalón varð að veruleika. Stríðið í Írak hélt áfram, Saddam Hussein var tekinn af lífi og ísraelski herinn réðst inn í Líbanon, en hrökklaðist sem betur fer heim aftur. Vonandi verður næsta ár betra á öllum vígstöðvum. Við voffilíus ætlum að leggja land undir fót og flytja á nýjan stað, þar sem ný vinna bíður. Ég óska öllum bloggurum og öðrum lesendum gleðilegs ár og þakka fyrir árið sem er að líða.







