
Ég ætti kannski að hætta að vorkenna sjálfri mér, þó að það líti út fyrir að ég muni sitja uppi með baðvaskinn, baðkarið og innréttingarnar í stofunni næstu vikuna, ef ekki vikurnar. Ég fæ nefnilega ekki flísalagningamann fyrr en það rignir. En
systir lenti heldur betur illa í því þegar hún flutti úr
einni vík í aðra. Flutningabílinn fór nefnilega út af veginum og stór hluti af búslóðinni skemmdist. Þar á meðal var víst nýlegt borðstofuborð, stofuborð, stofuskápur, ísskápur, glænýr sófi og fleira. Leirtauið er líka meira og minna brotið, miðað við fréttir sem ég fékk að austan. Lærdómur þessarar viku: Það er hættulegt að leggjast í framkvæmdir á heimilinu, en það er ennþá hættulegra að flytja!