sunnudagur, júlí 30, 2006

Góðir gestir

Telma & Kalli
Idol-stjarnan fyrrverandi og kórdrengurinn komu til mín í kvöld í mat og myndatöku. Þau tóku sig bara vel út í garðinum, enda bæði myndarleg mjög eins og allir í okkar fjölskyldu. Afrakstur myndatökunnar má sjá á myndasíðunni.

þriðjudagur, júlí 25, 2006

Töfraherbergið

Forstöðumanneskjan, sambýliskona mín, er á stefnumóti í kvöld. Ég býst fastlega við því að hún verði farin í sambúð innan mánaðar og komin með barn eftir árið. Hvers vegna? Jú, vegna þess að aukaherbergið hjá mér hefur þannig áhrif á fólk. Síðasta sambýliskona mín var komin í sambúð skömmu eftir að hún flutti dótið sitt hingað inn í fyrra og hún á von á barni í september. Kannski ætti ég að fara að selja einhleypum aðgang að herberginu. Ég sé auglýsinguna fyrir mér: Töfraherbergi til leigu. Eftir mánuð í þessu herbergi munt þú ganga út eða fá leiguna endurgreidda. Í öðrum fréttum er það helst að systir mín elskuleg er að flytja á Suðurlandið ásamt bónda sínum og börnum. Allt gott að frétta, sem sagt.

sunnudagur, júlí 23, 2006

Sjóræningjar

Black ship
Síðasta vika var að miklu leyti helguð sjó og sjóræningum. Á fimmtudagskvöldið fórum við forstöðumaðurinn í siglingu um Faxaflóann og á föstudaginn fórum við ásamt ofurkennaranum og ítalskri vinkonu hennar á forsýningu myndarinnar Pirates of the Caribbean: Dead Man's Chest. Sjóræningjamyndin var ágæt, en samt ekki eins góð og fyrsta myndin. Johnny Depp var fyndinn og Orlando Bloom var sætur, tækibrellurnar flottar og margar aukapersónurnar skemmtilegar, en söguþráðurinn hefði mátt vera betri. Myndin endaði engan veginn, enda er von á þriðju myndinni sem mun væntanlega hnýta alla lausa enda. En þetta er samt hin ágætasta skemmtun og betri en margir aðrir sumarsmellir.

laugardagur, júlí 22, 2006

Er nauðsynlegt að skjóta þá?

Seagulls
Það er ekki nóg með að Gísli Marteinn vilji ólmur skjóta máfa, heldur er fólk farið að skrifa heilu pistlana og lesendabréfin í blöðin út af "máfaplágunni" svokölluðu. Einn þeirra sem tjáði sig í vikunni kvartaði undan því að máfagarg héldi fyrir honum vöku hálfu og heilu næturnar. Svo var sagt frá því í fjölmiðlum að máfarnir ætu andarunga og jafnvel að þeir væru að stela stórsteikum af grillum landsmanna. Hvað er að fólki? Hvað kemur næst? Ætla menn að kvarta yfir þrastasöngnum sem vekur þá á morgnana? Hvað með flugurnar, sem geta sest á dýrmætan grillmatinn? Þarf ekki að útrýma þeim líka? Sumir vilja nú meina að það sé eitthvað annað en máfarnir sem veldur fækkun á andarungum. Á Akureyri kennir meindýraeyðirinn köttum um skort á andarungum. Þarf þá ekki að skjóta kettina líka?

miðvikudagur, júlí 19, 2006

Sól, sól skín á mig

Í dag hefði verið gott að vera í útivinnu. Sólin skein og í hádeginu fór ég á Café París og hitti nýútskrifaða kennarann. Miðbærinn var fullur af fólki sem naut sólarinnar til hins ítrasta, enda er langt síðan hún hefur sýnt sig almennilega hér á höfuðborgarsvæðinu. Eftir hádegismatinn gat kennarinn spókað sig áfram í bænum, en ég fór aftur í vinnuna. Þrátt fyrir allt finnst mér svolítið gaman í nýju vinnunni. So far, so good.

mánudagur, júlí 17, 2006

Jæja

Mér tókst að lifa fyrsta vinnudaginn af. Það er alltaf kostur. Við voffilíus urðum að leggja okkur eftir erfiðan dag. Systir átti afmæli í gær og er nú komin hátt á fimmtugsaldur. Litli frændi minn, sem ekki er lengur svo lítill, átti líka afmæli í vikunni, en hann varð tólf ára. Næst á dagskrá hjá mér er að fara í hvalaskoðun á fimmtudagskvöldið. Svo langar mig á Morrissey tónleikana ef einhver fæst til þess að fara með mér. There's a light that never goes out...

sunnudagur, júlí 16, 2006

Ég þoli ekki...

Ég keypti nýjasta heftið af tímaritinu Mannlíf í vikunni, sem er í sjálfu sér ekki í frásögur færandi. Blaðinu fylgdi smásagnasafn með verðlaunasögum Mannlífs og Hins íslenska glæpafélags. Af einhverjum ástæðum byrja þrjár af sögunum alveg eins, þannig að ég hélt á tímabili að ég væri að lesa sömu söguna aftur og aftur. "Ég þoli ekki langskólagengnar jússur," er fyrsta setningin í sögunni sem hlaut fyrstu verðlaun. Sagan sem lenti í öðru sæti hefst á orðunum: "Ég þoli ekki spegla," og Stella Blómkvist byrjar sína sögu með setningunni: "Ég þoli ekki jarðarfarir." Tilviljun?

föstudagur, júlí 14, 2006

Áfall


Ég sá þetta merkilega próf hjá henni Kötu og varð auðvitað að prófa. Reiknaði með því að BBC væri nú ekki að setja neina vitleysu á vefsíðu sína. En ég varð fyrir áfalli þegar ég fékk niðurstöðurnar, því samkvæmt prófinu er ég andlegur karlmaður! Alla fékk ég sömu niðurstöðu og meðalkarlinn sem tekur þetta próf, en það er ansi langt frá niðurstöðum meðalkonunnar. Og ég sem er ekki einu sinni lesbía. Nú verð ég greinilega að fara að horfa á fótbolta og formúluna, skipta litla hundinum mínum út fyrir einhvern stærri, fá mér veiðistöng og kaupa mér jeppa. BBC hefur eyðilagt líf mitt.

Hafnfirska leiðin

Nýr meirihluti í Reykjavík ætlar að fara hafnfirsku leiðina í jafnréttismálunum og leggja niður starf jafnréttisráðgjafa. Lýðræði og mannréttindi eru greinilega í tísku, en jafnréttismálin að sama skapi í ónáð. Hildur Jónsdóttir hefur starfað í áratug sem jafnréttisráðgjafi borgarinnar og á þeim tíma fengu bæði Reykjavíkurborg og Orkuveita Reykjavíkur viðurkenningu Jafnréttisráðs fyrir starf að jafnréttismálum. En nú þykir borgarstjórnarmeirihlutanum nóg komið. Stundum eru laun heimsins vanþakklæti.

fimmtudagur, júlí 13, 2006

Sjálfkjörið í Framsókn?

Af hverju hafa Framsóknarmenn svona mikla trú á Jóni Sigurðssyni? Guðni Ágústsson þorir ekki að bjóða sig fram gegn honum og hugsanlega verður Jón sjálfkjörinn sem formaður flokksins. Jón var handvalinn sem ráðherra og reynsla hans af stjórnmálum er afar takmörkuð. Hann hefur vikið sér undan erfiðum spurningum í fréttaviðtölum og er að mörgu leyti óskrifað blað. Ég veit heldur ekki hversu vel hann virkar á kjósendur. Ég vona að Siv taki slaginn og bjóði sig fram gegn Jóni, en satt að segja efast ég um það.

þriðjudagur, júlí 11, 2006

Ch-ch-ch-ch-changes

Í dag voru flísarnar rifnar af baðgólfinu mínu með aðstoð tækninnar. Með þessu áframhaldi verð ég komin með nýtt baðherbergi fyrir haustið. Svo er ég að velta því fyrir mér að láta smíða pall í garðinum, ef hagstætt tilboð fæst. En það er fleira að gerast. Við voffilíus fáum nýja sambýliskonu sem flytur inn í aukaherbergið í kvöld og svo var mér boðin ný vinna í dag. Allt að gerast, sem sagt.

sunnudagur, júlí 09, 2006

Hiti

Nú geta Íslendingar ekki kvartað lengur yfir veðrinu, alla vega ekki í bili. Við voffilíus erum búin að sóla okkur í garðinum í dag ásamt nágrannatíkinni og eiganda hennar. Þó að stemmingin sé góð hjá okkur jafnast hún samt varla á við hitan og spennuna hjá ofurkennaranum, sem er á Ítalíu og ætlar að horfa á úrslitaleikinn í HM á risatjaldi í Flórens. Auðvitað höldum við með Ítalíu, nema hvað? Viva Italia!

föstudagur, júlí 07, 2006

Hamingja

yellow
Í dag er sól. Við voffilíus fórum út að ganga í góða veðrinu. Öll familían er í bænum, aldrei þessu vant, og í kvöld verður lambahryggur í matinn hjá mútter. Ég er að fara að kaupa afmælisgjöf handa litlum frænda, sem verður tólf ára í næstu viku. Um helgina ætlum við fröken Kennedy svo að kíkja í bíó. Hvaða máli skiptir þó að ég sé blönk og starfsframinn enginn? Ef maður á góða fjölskyldu, vini og hund, þá þarf maður varla mikið meira. Ef sólin skín í þokkabót, er lífið fullkomið.

Rokkstjarnan

Ég freistaðist til að vaka í gærkvöldi og horfa á Rockstar Supernova á Skjá einum. Ég hef aldrei verið mikill aðdáandi hljómsveitarinnar Á móti sól, en ég fylgdist af og til með síðustu þáttaröð og hún var hin ágætasta skemmtun. Magni stóð sig þokkalega, en ekki mikið meira en það. Í hópnum voru nokkrir öflugir söngvarar og vonandi fá þau flest tækifæri til að láta ljós sitt skína. Allt er þetta unga fólk að keppa um að fá að syngja með hljómsveit með nokkrum gömlum rokkurunum, sem allir eru komnir vel yfir fertugt. Ég efast um að Magni endi sem söngvari hljómsveitarinnar, en vonandi dettur hann samt ekki út strax eftir fyrsta þáttinn.

mánudagur, júlí 03, 2006

Mikilvægu málin



Mikið hljóta Reykvíkingar að vera sælir með nýjan meirihluta í borgarstjórn. Liðsmenn meirihlutans segjast stunda athafnastjórnmál, en ekki umræðustjórnmál. Þeir eru líka strax byrjaðir að athafna sig. Gísli Marteinn er kominn á máfaskytterí og Vilhjálmur er á fullu í innanhússkreytingum. Hann byrjaði á því að hengja upp málverk í Höfða. Það er alltaf gott þegar ráðamenn átta sig því hvað skiptir máli.


Því meðan til er böl sem bætt þú gast

og barist var á meðan hjá þú sast

er ólán heimsins einnig þér að kenna

Tómas Guðmundsson
  • Myndasíðan mín
  • Ísland
  • Hundalíf
  • Palestína
  • www.flickr.com
    This is a Flickr badge showing public photos from farfuglinn. Make your own badge here.
  • Gönguferð á sandi
  • Brain Damage
  • Eclipse
  • Puff The Magic Dragon
  • Windmills Of Your Mind
  • The Blower's Daughter

  • Harpa
  • Hildigunnur
  • Nanna
  • Þórdís
  • Telma
  • Afi
  • Alla
  • Anna
  • Arngrímur
  • Ásta
  • Baun
  • Beta
  • Einar J.
  • Ella Stína
  • Elías
  • Erla
  • Erna
  • Erna E.
  • Eyja
  • Guðný Anna
  • Gurrí
  • Gurrý Guðfinns
  • Gvendarbrunnur
  • Hanna litla
  • Harpa Hreins
  • Heiða B.
  • Hildur
  • Hreinn
  • Hryssa
  • Hugskot
  • Ibba Sig.
  • Ingibjörg
  • Kalli
  • Kata
  • Kisuvinur
  • Kitta
  • Kókó
  • Lilja
  • Ljúfa
  • Matti
  • París
  • Pálína
  • Pönk
  • Silja
  • Snilldur
  • Steingerður
  • Svanurinn
  • Tóta litla
  • Vélstýran


  • Locations of visitors to this page
  • Global voices
  • OneVoice Movement
  • Palestine blogs

  • Fésbókin
  • Myndasíða Hörpu
  • Myndasíða Einars
  • Parísardaman
  • Brall í bauk
  • Hugarflug
  • Hugsandi
  • Ísland-Palestína
  • Vinir Indlands
  • Name: farfuglinn
    Location: Iceland

    Eilífðarstúdent, íbúðareigandi, yngri systir, dramadrottning, lestrarhestur, bíómyndafíkill og áhugamanneskja um ferðalög með meiru. Lönd sem ég hef komið til Evrópulönd sem ég hef heimsótt Bandarísk fylki sem ég hef komið til

    Powered by Blogger

    Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Free Counter
    Advanced Technology Institute