Career opportunities
Nýafstaðnar kosningar þýða að störf bæjar- og sveitarstjóra í hinum ýmsu sveitarfélögum liggja á lausu. Ég þekki þrjá einstaklinga, tvær konur og einn karlmann, sem létu sig hafa það fyrir fjórum árum að flytja út á land og stjórna þrotabúi einhvers sveitarfélags. Undanfarið hafa störf bæjarstjóra Fjallabyggðar (hvar sem það er), Fjarðabyggðar og Bolungarvík verið auglýst. Einnig vantar sveitarstjóra í Skeiða- og Gnúpverjahrepp, Hvalfjarðarsveit og Húnavatnshrepp. Ég á nú ættingja bæði á Bolungarvík og í Húnavatnshrepp, auk þess sem familían á sumarbústað fyrir austan. Það versta við að vera bæjarstjóri úti á landi er samt að maður þarf að búa úti á landi. Ég er ekki viss um að ég sé tilbúin til þess.









