föstudagur, apríl 28, 2006

Gyðjukvöld


Við ofurkennarinn skelltum okkur á gyðjukvöld í versluninni Maður lifandi í gærkvöldi. Þar hittum við kennaranemann ásamt vinkonu hennar. Á staðnum var boðið upp á tískusýningu, kynningu á alls kyns heilsuvörum, spádóma og magadans, sem dansarar frá Kramhúsinu sýndu. Mér skilst að það hafi verið heilmikil umræða um magadans á póstlista Femínistafélagsins nýlega, þar sem sumir félagsmenn töldu dansinn vera hluta af klámvæðingunni svokölluðu. Nú er magadansinn ævaforn austurlenskur frjósemisdans, þó að nútíma útgáfa hans hafi verið þróuð á síðustu öld. Þegar ég bjó í Bretlandi fór ég í nokkra tíma í magadansi og hafði gaman af. Ég á erfitt með að sjá klámvæðingu í magadansi og mér finnst að fólk verði að gera greinarmun á klámi og nekt. Annars endum við á svipuðum stað og nýskipaður menningarráðherra í Palestínu, sem telur magadans vera dónalegan. Hann vill líka aðskilja kynin á opinberum stöðum og banna áfengissölu, svo að fátt eitt sé nefnt.

þriðjudagur, apríl 25, 2006

Úrslitaviðureign

Eins og fram kemur í Fréttablaðinu í dag er komið að úrslitum í keppni ungskálda, Sigurskáldinu. Tvær ungar skáldkonur keppa til úrslita, þær Ásta Heiðrún og Unnur Andrea. Svo skemmtilega vill til að Ásta er dóttir Baunarinnar, sem er eðalbloggari og ljóðskáld eins og dóttirin. Hægt er að kjósa sitt uppáhalds ljóð með því að senda smáskilaboð í símanúmerið 1900. Skilaboðin eru JA L2 til að kjósa ljóð Ástu, en JA L6 fyrir ljóð Unnar. Ekki er verra að þau sem taka þátt í kosningunni geta hreppt bókavinning.

laugardagur, apríl 22, 2006

Ást og ástleysi

Sá þetta fyrst hjá Nönnu, en ég ætla örugglega að fá lánaða peninga hjá Þórdísi. Hildigunnur getur svo frætt okkur um ástina, en ég gæti helst spjarað mig sem andlegur gúrú miðað við þetta.

This Is My Life, Rated
Life:
6.1
Mind:
7.1
Body:
7
Spirit:
8.2
Friends/Family:
4.5
Love:
0.8
Finance:
5.2
Take the Rate My Life Quiz

föstudagur, apríl 21, 2006

Blaðamaðurinn

Ég er ekki viss um að Mogginn sé sammála þessari niðurstöðu. Hvað segir þú? Hver er þín týpa?

ENFP - "Journalist". Uncanny sense of the motivations of others. Life is an exciting drama. 8.1% of total population.
Take Free Jung Personality Test
personality tests by similarminds.com

fimmtudagur, apríl 20, 2006

Fyrsti dagur sumars



Ekki veit ég hvers vegna Íslendingar halda upp á sumardaginn fyrsta þegar varla er komið vor, eða hvers vegna næturfrost síðustu vetrarnóttina telst vera góður fyrirboði. En hitinn fór alla vega niður fyrir frostmark víða um land í nótt, þannig að við eigum vonandi gott og skemmtilegt sumar í vændum. Í tilefni dagsins bar ég olíu á garðhúsgögnin mín og tók aðeins til í garðinum. Nú bíð ég spennt eftir sólinni.

þriðjudagur, apríl 18, 2006

Ólíkt höfumst við að



Bandarísk frænka mín skrifaði mér bréf fyrr á þessu ári, þar sem hún talaði meðal annars um hækkandi bensínverð. Hún sagði að fólk þar vestra væri farið að draga úr langferðum og að margir keyptu sér minni bíla en áður. Þetta rifjaðist upp fyrir mér í vikunni, þegar ég las um hátt bensínverð á Íslandi. Við búum víst við þann vafasama heiður að vera með dýrasta bensín í heimi. Ekkert bendir samt til þess að dregið hafi úr jeppakaupum hérlendis vegna þessa. Bensínið vestra kostar um eða innan við þrjá dollara á gallonið, sem mér reiknast til að séu um 60 krónur á hvern lítra. Verðið hér heima er tvöfalt hærra. Samkvæmt fréttum frá íslenskum bílasölum var árið í fyrra metár í bílasölu og þá ekki síst í sölu stórra bíla, en hlutur smábíla hefur hins vegar heldur minnkað. Eða eins og einn bílasalinn orðaði það: "Við erum kannski svo ónæm fyrir háu eldsneytisverði að það skiptir okkur kannski engu máli." Er það raunin?

föstudagur, apríl 14, 2006

Föstudagurinn langi

Þá er föstudagurinn langi runninn upp. Samkvæmt mútter má hvorki borða kjöt né vinna á þessum degi. Gott ef maður á ekki bara að hlusta á leiðinlega tónlist og stunda andlega íhugun. Ég ákvað að fara ekki að ráðum hennar, enda er ég ekki kaþólsk. Ég er ekki einu sinni í Þjóðkirkjunni. Þess vegna fékk ég mér brauð með skinku í morgunmat og hef dundað mér við það að þvo þvott og rífa flísar af baðherbergisveggjum. Eflaust er ég búin að tryggja mér eilífa vítisvist fyrir löngu, en ef þetta dugir ekki þá er mér boðið í partý hjá Grafarvogsbúunum í kvöld. Reyndar fæ ég fisk í kvöldmatinn, þar sem mútter bauð okkur voffilíusi í mat. Vonandi dugar það til að bjarga okkur.

mánudagur, apríl 10, 2006

Undir yfirborðinu

Fröken Kennedy plataði mig með sér í köfun á laugardaginn. Gegn smávægilegu gjaldi fengum við lánaðan útbúnað til köfunar og einkakennara, sem leiddi okkur um undirdjúp Sundhallarinnar. Við tókum sem sagt þátt í köfunardeginum og skemmtum okkur konunglega. Ég hef einu sinni prófað að snorkla í sjónum við Kúbu, en þetta var allt öðru vísi. Ég skal alveg viðurkenna að ég var ekki sú allra djarfasta þegar kom að því að fara niður á botn laugarinnar, en það var samt gaman að prófa þetta og ég væri alveg til í að fara aftur að kafa. Kannski skellum við okkur á námskeið hjá Köfunarskólanum og verðum algerar neðansjávargellur.

fimmtudagur, apríl 06, 2006

Af hverju ættleiðum við ekki frá Grænlandi?


Myndin hér að ofan er ekki bara til þess að gleðja karlkyns lesendur síðunnar, heldur tengist hún efni greinar sem ég var að skrifa fyrir hið ágæta vefrit Hugsandi. Mér barst beiðni frá sálfræðinemanum síkáta og fjórum tímum síðar var greinin fædd. Ef ættleiðingar gengju svona hratt fyrir sig værum við ekki lengi að tæma grænlensku munaðarleysingjahælin.

miðvikudagur, apríl 05, 2006

Bækur í stað hers

Ef fyrsti apríl væri ekki liðinn, þá hefði ég verið sannfærð um að þessi bráðfyndna frétt væri aprílgabb: Sendiherra Bandaríkjanna gefur Íslendingum bókagjöf til að bæta úr þekkingarskorti á sviði varnarmála, skömmu eftir að tilkynnt hefur verið um brottför hersins frá Keflavík. Eflaust hefur einhverjum almannatenglinum fundist þetta vera bráðsniðug hugmynd, þar sem hægt væri að kynna nýjan sendiherra á jákvæðan hátt, en eiginlega kemur þetta meira út eins og móðgun. Íslendingar eru of miklir aular til að læra að verja sig sjálfir, svo að við gefum þeim sjálfshjálparbækur. Á ensku myndi maður sennilega kalla þetta "patronizing". Þessi setning úr fréttinni finnst mér sérstaklega skemmtileg, en um leið frekar pínleg: "Forstöðumaður meistaranáms HÍ í alþjóðasamskiptum segir gjöfina ekki sárabót fyrir brottför hersins." Það er einmitt það.

mánudagur, apríl 03, 2006

Lóan er komin að kveða burt snjóinn...

Bird
Skáldið hafði rétt fyrir sér. Apríl er grimmastur mánaða. Fyrir örfáum dögum tók ég eftir fallegum skógarþresti hér í garðinum og náði að smella nokkrum myndum af honum. Sólin skein, páskaliljurnar voru löngu komnar upp úr moldinni, lauf voru komin á runnana og vor var í lofti. Að vísu var svolítið kalt í gær, en ég var samt sannfærð um að vorið væri komið. Svo kíki ég út með voffilíus eftir hádegið í dag og það byrjar að snjóa. Ég reyni að vera bjartsýn og hugsa að þetta séu bara örfá snjókorn sem eigi eftir að hverfa jafnharðan. En nú er jörðin að verða alhvít og enn snjóar. Hvers konar vitleysa er þetta eiginlega? Mér skilst að vorið sé komið sunnar í álfunni. Þurfum við alltaf að vera með annað veður en aðrir? Ég vil vor!

laugardagur, apríl 01, 2006

Aprílgabb?

Frænka mín er að fermast í dag. Ég veit ekki hversu heppilegt það er að fermast 1. apríl. Kannski er það ágætt, ef fermingarbarnið vill hafa einhvern fyrirvara á fermingunni. Það er alltaf hægt að segja eftir á að fermingarheitin hafi bara verið aprílgabb. Ég væri að minnsta kosti til í að sverja af mér mína fermingu í dag, sérstaklega ef það er satt að erindrekar Þjóðkirkjunnar hafi hótað piltunum sem héldu úti vefnum Vantrú með málsókn. En kannski var það bara aprílgabb. Dagurinn í dag gerir mig tortryggnari en venjulega. Ég les allar auglýsingar með gagnrýnum augum og tek öllu sem sagt er við mig með fyrirvara. Til dæmis bauð fröken Kennedy mér með sér á matarsýninguna þar sem Nanna mun vera með bás. Var það aprílgabb?


Því meðan til er böl sem bætt þú gast

og barist var á meðan hjá þú sast

er ólán heimsins einnig þér að kenna

Tómas Guðmundsson
  • Myndasíðan mín
  • Ísland
  • Hundalíf
  • Palestína
  • www.flickr.com
    This is a Flickr badge showing public photos from farfuglinn. Make your own badge here.
  • Gönguferð á sandi
  • Brain Damage
  • Eclipse
  • Puff The Magic Dragon
  • Windmills Of Your Mind
  • The Blower's Daughter

  • Harpa
  • Hildigunnur
  • Nanna
  • Þórdís
  • Telma
  • Afi
  • Alla
  • Anna
  • Arngrímur
  • Ásta
  • Baun
  • Beta
  • Einar J.
  • Ella Stína
  • Elías
  • Erla
  • Erna
  • Erna E.
  • Eyja
  • Guðný Anna
  • Gurrí
  • Gurrý Guðfinns
  • Gvendarbrunnur
  • Hanna litla
  • Harpa Hreins
  • Heiða B.
  • Hildur
  • Hreinn
  • Hryssa
  • Hugskot
  • Ibba Sig.
  • Ingibjörg
  • Kalli
  • Kata
  • Kisuvinur
  • Kitta
  • Kókó
  • Lilja
  • Ljúfa
  • Matti
  • París
  • Pálína
  • Pönk
  • Silja
  • Snilldur
  • Steingerður
  • Svanurinn
  • Tóta litla
  • Vélstýran


  • Locations of visitors to this page
  • Global voices
  • OneVoice Movement
  • Palestine blogs

  • Fésbókin
  • Myndasíða Hörpu
  • Myndasíða Einars
  • Parísardaman
  • Brall í bauk
  • Hugarflug
  • Hugsandi
  • Ísland-Palestína
  • Vinir Indlands
  • Name: farfuglinn
    Location: Iceland

    Eilífðarstúdent, íbúðareigandi, yngri systir, dramadrottning, lestrarhestur, bíómyndafíkill og áhugamanneskja um ferðalög með meiru. Lönd sem ég hef komið til Evrópulönd sem ég hef heimsótt Bandarísk fylki sem ég hef komið til

    Powered by Blogger

    Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Free Counter
    Advanced Technology Institute