mánudagur, febrúar 27, 2006

Sex daga skalt þú vinna...



Ég er mikið fyrir það að halda hvíldardaginn heilagan. Þess vegna setti ég nýtt persónulegt met og fór í Mecca Spa tvær helgar í röð. Fyrri helgina fór ég ein í Mecca Spa í Kópavogi og lét snyrta mig og nudda, auk þess sem ég lét mér líða vel í heita pottinum. Nú um helgina fórum við fröken Rockefeller í heilsulindina á Hótel Sögu og buðum landsbyggðarfrúnni með okkur. Tilefnið var stórafmæli frúarinnar. Ég verð nú að segja að ég er hrifnari af heilsulindinni í Kópavogi, einfaldlega vegna þess að hún er minni og rólegri. En nuddið á Sögu var samt mjög fínt og greinilegt að við vorum komnar á heldri manna slóðir. Til dæmis mætti ég merkustu konu Íslands í anddyri hótelsins og svo voru nemendur úr ónefndum viðskiptaháskóla að hertaka staðinn þegar við fórum heim. Ég er að hugsa um að stofna söfnuð í anda Mecca Spa. Eftir tvö þúsund ár munu konur svífa um á hvítum sloppum og boðorðin verða eitthvað á þessa leið: 1. Ég er Mecca Spa. Þú skalt ekki í aðrar heilsulindir fara. 2. Sloppur og handklæði skulu afhendast í móttökunni. 3. Konur og karlar skulu nota sinn hvorn búningsklefann. 4. Þú skalt þvo þér án sundfata áður en stigið er í laugina. 5. Hylja skalt þú líkama þinn með sundfötum í heita pottinum.

Blátt áfram

Auglýsingaherferð systranna í Blátt áfram virðist koma illa við sumt fólk, en mér finnst hún mjög góð og þörf áminning. Fyrsta herferð samtakanna bar það með sér að vera gerð af áhugafólki og var illa staðfærð, en nýja sjónvarpsauglýsingin er fagmannlega unnin í alla staði. Í Kastljósinu á dögunum kom fram að börnin eru ekki látin lesa eitthvað handrit skrifað af fullorðnum, heldur fengu þau fræðslu um kynferðisofbeldi og nota sín eigin orð í auglýsingunni. Þetta er nokkuð sem allir foreldrar ættu að gera. Fræða börnin um líkama sinn, ekki síst hvað má og hvað má ekki gera við þau, án þess að innræta þeim ofsahræðslu við alla ókunnuga. Ef þessi herferð bjargar einu barni frá kynferðisofbeldi eða fær eitt barn til þess að segja frá, eins og mér skilst að hafi þegar gerst, þá er tilganginum náð. Kynferðisofbeldi og annað ofbeldi gegn börnum og unglingum þrífst ekki síst í þögninni.

laugardagur, febrúar 25, 2006

Gullna jafnvægið

Sá þessa snilld hjá Kalla. Margt vinnandi fólk ætti að kannast við þetta.


föstudagur, febrúar 24, 2006

Klukk enn og aftur

Var klukkuð af Veigu og sem sjálfhverfur bloggari get ég að sjálfsögðu ekki skorast undan.

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina :
1. Blaðamaður
2. Barþjónn
3. Heimilishjálp
4. Fiskvinnslukona

Fjórar bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:
1. Casablanca
2. When Harry Met Sally
3. Apocalypse Now
4. LOTR

Fjórir staðir sem ég hef búið á:
1. Ísland
2. Svíþjóð
3. Bandaríkin
4. Ísrael/Palestína

Fjórir sjónvarpsþættir sem ég horfi á:
1. Lost
2. Friends
3. Desperate Housewives
4. Queer Eye for the Straight Guy

Fjórar bækur sem ég held upp á:
1. Hvunndagshetjan
2. Blómið sem þú gafst mér
3. Wuthering Heights
4. Things Fall Apart

Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg:
1. hi.is
2. visir.is
3. mbl.is
4. google.com

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
1. Kúba
2. Eistland
3. Egyptaland
4. Mexíkó

Fernt matarkyns sem mér finnst gott:
1. Kjúklingur
2. Nýrnabaunir (og kjúklingabaunir)
3. Hummus
4. Túnfiskur

Fjórir staðir sem ég vildi heldur vera á núna:
1. Indland
2. Kína
3. Ástralía
4. Jórdanía

Fjórir kynþokkafullir karlmenn:
1. Johnny Depp
2. Colin Firth
3. Keanu Reeves
4. Jude Law (þori ekki að nefna neina íslenska af ótta við að þetta birtist í DV!)

Ætli flestir sem hafa áhuga séu ekki búnir að svara þessu? Þó væri gaman að sjá hvað Kitta, Kókó, Ármann og Kibba hafa að segja. Ég klukka þau hér með!

fimmtudagur, febrúar 23, 2006

Ævi og ástir karlkyns kennara



Þrátt fyrir talsverðar annir tókst mér að horfa á nokkrar bíómyndir á DVD í vikunni. Sú besta var sennilega Fever Pitch, sem er gerð eftir sögu Nick Hornby. Leikstjórarnir eru hinir mögnuðu Farelly bræður, sem eiga m.a. að baki myndirnar There's something about Mary og Me, myself and Irene. Myndin fjallar um kennara sem er æstur íþróttaáhangandi, og samband hans við kaupsýslukonu, sem ekki hefur sama áhugamál. Vissulega ristir myndin ekki mjög djúpt, en hún er krúttleg og handritið mun betra en venjan er í rómantíska gamanmyndabransanum. Alla vega langaði mig til að giftast kennaranum í lok myndarinnar. Ég las bókina fyrir löngu, en hún gerist í Englandi og fjallar um fótboltaáhugamann. Mér skilst að það sé til níu ára gömul bresk mynd eftir sömu bók með Colin Firth í aðalhlutverki. Það væri nú eitthvað til að sökkva tönnunum í!

mánudagur, febrúar 20, 2006

Bloggmafían

Ég ætla að vekja athygli dyggra lesenda á því að bloggmafían hefur nú sett í gang áætlun sína um yfirtöku á íslenska fjölmiðlaheiminum. Hinn óþvegni massi internetsins streymir nú inn í neðanjarðarbyrgi og fílabeinsturna prentmiðlanna. Þaðan mun þetta lið hefja skæruhernað sem mun annað hvort enda í þriðju heimsstyrjöldinni eða í nýju Nirvana. Enginn veit hver er næstur. Mun Þórdís fá sér vinnu á Fréttablaðinu? Fer systir að skrifa pistla í Moggann? Ætlar Kókó að gerast ritstjóri Húsfreyjunnar? Verið ávallt stillt á farfuglinn og fáið nýjustu fréttir.

föstudagur, febrúar 17, 2006

Til hamingju Ísland!

Silvía Night - Congratulations Iceland

Hey you, seriously cool, I'm talking to you
I’m Silvia Night shining in the light
I know you want me

Born in Reykjavík, real talented, no hill-billie freak
I know I'll win the fucking finals, the others ain't in

Congratulations Iceland, I was born here
I'm Silvia Night and I have no fear
Eurovision nation gets a chill when I come
I'm born to win this thing, where I am from
töff, töff, töff

My song, seriously cool, no 90's filthy shit
It's tough okay, it isn't gay
I've come here to stay
The other bitches are all soiled
but I am unspoiled
You love me, you worship me, but still you're just so hopeless

Congratulations Iceland, I was born here
I’m Silvia Night and I have no fear
Eurovision nation gets a chill when I come
I’m born to win this thing, where I am from
je!, je!, je!


Iceland, Congratulations Iceland, Congratulations Iceland, Congratulations Iceland, Congratulations Iceland, Congratulations Iceland, Congratulations Iceland, Congratulations Iceland.Ring ring ring Ring ring ring Ring ring ring Ring ring ring


Congratulations Iceland, I was born here
I’m Silvia Night and I have no fear
Eurovision nation gets a chill when I come
I’m born to win this thing, where I am from


Congratulations Iceland, I was born here
I’m Silvia Night and I have no fear
Eurovision nation gets a chill when I come
I rock this contest, get plenty of points
töff, töff, töff

Spádómur

Ég hef áður viðrað spádómsgáfu mína hér á síðunni og hyggst gera það áfram. Nú ætla ég að spá fyrir um úrslitin í Eurovision forkeppninni hér heima á Íslandi, sem fer fram á morgun. Ég sé fyrir mér að Silvía Nótt sigri, mjög óvænt. Einnig sé ég í kristalskúlunni minni að lagið hans Trausta sem Regína Ósk syngur, muni verða í öðru sæti. Þeir sem vilja veðja á móti þessari spá geta skilið eftir komment. Ég veðja þó ekki upp á meira en tíu krónur. Haldið þið ekki að ég sé gott efni í Völvu Vikunnar?

miðvikudagur, febrúar 15, 2006

Glæpur gegn tískunni

Fyrsta spurningin sem ég fékk þegar ég sótti voffilíus til mútter í dag eftir vinnu var ekki: "Hvernig gekk þér í nýju vinnunni?" Ég var heldur ekki beðin um að lýsa afrekum mínum á sviði blaðamennskunnar undanfarna þrjá daga. Nei, það sem ég fékk að heyra var: "Fórstu í þessu í vinnuna?" Systir, sem er stödd í bænum, tók undir þetta. Dómurinn var einróma. Ég framdi sem sagt þann stórglæp að mæta í gallabuxum, hettupeysu og íþróttaskóm í vinnuna. Ég bar dóminn undir fröken Rockefeller sem skilaði séráliti. Hún taldi íþróttaskóna og gallabuxurnar sleppa, en peysan fékk falleinkunn. "Þetta eru laugardagsföt," sagði hún. Þá veit ég það.

mánudagur, febrúar 13, 2006

Vísnagáta

Af einhverjum dularfullum og óútskýrðum ástæðum dettur mér ákveðin vísa oft í hug þessa dagana. Þetta gerist ekki síst þegar ég les greinar í blöðunum eða horfi á einhvern þátt í sjónvarpinu, til dæmis á Silfur Egils.

Ég er ekki viss um að ég hafi vísuna rétt eftir, en þetta er alla vega nálægt lagi. Veit einhver glöggur lesandi hver er höfundur hennar?

Ef allt þetta fólk fær í glitsölum himnanna gist
sem gerir sér mat úr að nudda sér utan í Krist
Þá vaknar sú spurning hvort mikils sé misst
Þó maður að endingu lendi í annari vist

sunnudagur, febrúar 12, 2006

Fín niðurstaða

Þá liggur fyrir niðurstaða í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Ég vil þakka þeim sem kusu fyrir mína hönd. Fólkið í tíu efstu sætunum er flest fólk sem ég hefði kosið í topp tíu, ef ég hefði fengið að kjósa. Sérstaklega er ég ánægð með útkomu Steinunnar Valdísar, Bjarkar og Sigrúnar Elsu. Ég hefði viljað sjá Stefán Jóhann og Guðrúnu Erlu ofar á listanum, en þetta fór samt betur en ég þorði að vona. Samt er ég að hugsa um að fara í mál við stuðningsmenn Stefán Jóns vegna útvarpsauglýsingar þeirra sem ég heyrði í gær. "Allir mega kjósa," var sagt í henni, eða eitthvað álíka. Þetta er einfaldlega ekki satt. Ég fékk ekki að kjósa.

Ungabörnin

Ég get ekki stillt mig um að birta þessa snilld af vísi.is:

"Nuddaðu búkinn
Hvað er dásamlegra en að nudda ungabarnið upp úr lungamjúku nuddkremi frá L'occitane. Nuddkremið er algerlega lyktarlaust og og ekki ofnæmisvaldandi. Þetta er nuddkrem sem hentar bæði mæðrum og ungabörnum og jafnvel pöbbunum ef þeir eru prúðir."

föstudagur, febrúar 10, 2006

Vill einhver...



Vill einhver kjósa fyrir mig í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík? Sökum búsetulegrar mismununar fæ ég ekki að kjósa og mér finnst það svindl. Mér skilst að fólk þurfi ekki að skrá sig í flokkinn. Eina skilyrðið er að viðkomandi kjósi Steinunni Valdísi í fyrsta eða annað sætið. Val á öðrum frambjóðendum er frjálst. Tek fram að þetta er ekki grín. Ég grínast aldrei með svo alvarleg mál.

Kosningar

Sem mikil áhugamanneskja um kosningar hef ég lagt ýmislegt á mig í gegnum tíðina til þess að nýta mér kosningarétt minn. Eitt sinn eyddi ég heilum degi í rútuferð og þvæling um ókunnuga borg í landi þar sem ég talaði ekki málið, til þess eins að kjósa í sveitarstjórnarkosningum. Tók mér frí í vinnunni og allt. Íslenski ræðismaðurinn á staðnum sagði að ég hlyti að vera afskaplega skyldurækinn borgari, sem er fjarri sanni. Mér finnst bara gaman að kjósa. Ég hef kosið í opnum prófkjörum Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks án þess að skammast mín neitt fyrir. Svona er ég óforskömmuð. Í gær kaus ég lista fallega fólksins í kosningu til Stúdentaráðs. Einhver veginn hafði ég alltaf ímyndað mér að ég myndi kjósa Röskvu, ef svo ólíklega vildi til að ég yrði einhvern tímann nemi við Háskóla Íslands. En stundum verður kona að koma sjálfri sér á óvart.

fimmtudagur, febrúar 09, 2006

Breytingar

Ég byrja ekki í nýju vinnunni fyrr en á mánudaginn, svo að ég ætti að geta klárað ýmis verkefni hér heima fyrir þann tíma. Númer eitt er að ljúka við nokkrar greinar sem ég tók að mér að skrifa. Númer tvö er að reyna að taka aðeins til svo að heimilið líti ekki lengur út eins og ég búist við Allt í drasli fólkinu á hverri stundu. Númer þrjú er síðan að gera ráðstafanir varðandi hundinn. Ég er búin að vera "heimavinnnandi" meira og minna síðan ég fékk hann, svo að þetta verða viðbrigði fyrir okkur bæði. Valkostirnir eru hundaleikskóli, dagvistun hjá mútter, eða að hann verði einn heima. Einhvers staðar las ég að nýjasta tískan í Svíþjóð væri að fara með hundinn í vinnuna. Veit ekki alveg hvort að Íslendingar eru tilbúnir fyrir svo róttækar breytingar. Samt ég er viss um að hundar myndu lífga upp á marga vinnustaði.

miðvikudagur, febrúar 08, 2006

Morgundagurinn

Á morgun byrja ég í nýrri vinnu. Ég fékk símtal í gær, fór í viðtal í dag og þar með var það ákveðið. Stundum gerast hlutirnir hratt, en ég er þó búin að vera leynt og ljóst að sækjast eftir starfi á þessum vinnustað í meira en hálft ár. Morgundagurinn verður því öðruvísi en dagurinn í dag. Nýr og betri, eins og menn segja á auglýsingastofunum. Ég skulda fröken Rockefeller málsverð, þar sem ég hét á hana að bjóða henni út að borða ef ég fengi vinnuna. Næst ætla ég að heita á frökenina að bjóða henni til útlanda ef ég vinn stóra vinninginn í lottóinu. Strandakirkja hvað?

þriðjudagur, febrúar 07, 2006

Dagurinn í dag




Sálfræðineminn sæti á afmæli í dag og mútter er búin að fá nýju íbúðina afhenta. Ofurkennarinn lenti í sjötta sæti í prófkjörinu á laugardaginn. Ég fór í bíó um helgina með fröken Rockefeller og bókhaldaranum á myndina Hroki og hleypidómar, sem heimskonan bannaði okkur að kalla konumynd. Þetta var hin ágætasta skemmtun, þó að hr. Darcy væri varla nógu sjarmerandi í byrjun. En hann vann á og bringuhárin björguðu miklu. Annars er ekkert að frétta. Dagurinn í dag er dagurinn í gær. Nema að nú er snjór.

föstudagur, febrúar 03, 2006

Gamalt dót

Í dag pantaði ég sendibíl heim til mútter og við náðum í síðustu kassana mína úr geymslunni hjá henni, enda ekki seinna vænna þar sem hún flytur eftir viku. Nú er ég að dunda mér við að taka upp úr þessum kössum. Einn þeirra er frá því áður en ég fór í háskóla í Bandaríkjunum fyrir allmörgum árum. Þar fann ég meðal annars afrit af prófskírteininu mínu úr framhaldsskóla, gamla launaseðla frá Morgunblaðinu og enn eldri skólabækur. Í kassanum var líka símskeyti (já, ég er svona gömul) þar sem mér er óskað til hamingju með að hafa komist inn í háskóla í Bandaríkjunum. Loks eru þarna nokkrar grammófónplötur, sem ég veit ekki alveg hvað ég á að gera við. Er nokkuð hægt að gera annað en að henda þeim?


Því meðan til er böl sem bætt þú gast

og barist var á meðan hjá þú sast

er ólán heimsins einnig þér að kenna

Tómas Guðmundsson
  • Myndasíðan mín
  • Ísland
  • Hundalíf
  • Palestína
  • www.flickr.com
    This is a Flickr badge showing public photos from farfuglinn. Make your own badge here.
  • Gönguferð á sandi
  • Brain Damage
  • Eclipse
  • Puff The Magic Dragon
  • Windmills Of Your Mind
  • The Blower's Daughter

  • Harpa
  • Hildigunnur
  • Nanna
  • Þórdís
  • Telma
  • Afi
  • Alla
  • Anna
  • Arngrímur
  • Ásta
  • Baun
  • Beta
  • Einar J.
  • Ella Stína
  • Elías
  • Erla
  • Erna
  • Erna E.
  • Eyja
  • Guðný Anna
  • Gurrí
  • Gurrý Guðfinns
  • Gvendarbrunnur
  • Hanna litla
  • Harpa Hreins
  • Heiða B.
  • Hildur
  • Hreinn
  • Hryssa
  • Hugskot
  • Ibba Sig.
  • Ingibjörg
  • Kalli
  • Kata
  • Kisuvinur
  • Kitta
  • Kókó
  • Lilja
  • Ljúfa
  • Matti
  • París
  • Pálína
  • Pönk
  • Silja
  • Snilldur
  • Steingerður
  • Svanurinn
  • Tóta litla
  • Vélstýran


  • Locations of visitors to this page
  • Global voices
  • OneVoice Movement
  • Palestine blogs

  • Fésbókin
  • Myndasíða Hörpu
  • Myndasíða Einars
  • Parísardaman
  • Brall í bauk
  • Hugarflug
  • Hugsandi
  • Ísland-Palestína
  • Vinir Indlands
  • Name: farfuglinn
    Location: Iceland

    Eilífðarstúdent, íbúðareigandi, yngri systir, dramadrottning, lestrarhestur, bíómyndafíkill og áhugamanneskja um ferðalög með meiru. Lönd sem ég hef komið til Evrópulönd sem ég hef heimsótt Bandarísk fylki sem ég hef komið til

    Powered by Blogger

    Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Free Counter
    Advanced Technology Institute