Uppgjör


Það er víst í tísku að gera upp gamla árið þegar það nýja heldur innreið sína. Reyndar eru bráðum liðnir fimm dagar af nýja árinu, en ég hef það mér til afsökunar að hafa verið tölvulaus allan þann tíma. Þrátt fyrir bílaólán, tölvuólán og ýmislegt annað ólán, var árið 2005 að mörgu leyti gott ár hjá mér. Fyrir réttu ári flutti ég í núverandi húsnæði og á svipuðum tíma keypti ég lítinn, hvítan bíl. Í sumar lét ég rúmlega 20 ára gamlan draum rætast og skellti mér í Ítalíuferð, sem stóð fyllilega undir væntingum. Svo rættist enn eldri draumur þegar ég eignaðist hund í haust. Eða kannski eignaðist hann mig. Að minnsta kosti erum við bara nokkuð sæl í íbúðinni okkar. Ég reikna fastlega með því að árið 2006 verði enn betra.


<< Home