mánudagur, október 31, 2005

Heimsfrægðin

AV check 3
Ein af ljósmyndum mínum frá Jerúsalem er birt á vefsíðunni Global voices í dag, sem haldið er út af lagadeild Harvard háskóla. Að sjálfsögðu gaf ég leyfi fyrir þessari birtingu. Síðan er annars mjög áhugaverð, en hún birtir fréttir og tengingar á blogg víðs vegar úr heiminum. Ritstjórar síðunnar rákust á myndina á myndasíðunni minni. Myndirnar mínar frá Palestínu hafa áður verið birtar á vefsíðum hér heima og ein þeirra rataði á forsíðu tímarits, en þetta er sennilega það næsta sem ég hef komist heimsfrægðinni hingað til. Samt er ljósmyndun ekki endilega mín sterkasta hlið.

sunnudagur, október 30, 2005

Heimspeki

Ég ók hluta af familíunni í leikhús í gær, og varð vitni að þessu heimspekilega samtali á milli tveggja vinkvenna á áttunda ári:

Stúlka A: Hvort þykir þér meira vænt um mig eða einhverja spólu?
Stúlka B: Þig.
Stúlka A: Spóla er nefnilega dáinn hlutur.
Stúlka B: Já, hann er búinn til dáinn.
Stúlka A: Hann er ekki með augu.
Stúlka B: Eða beinagrind.
Stúlka A: Manni á að þykja meira vænt um fólk en dána hluti.

föstudagur, október 28, 2005

30.000

Nú fer teljarinn hér á síðunni að nálgast þrjátíu þúsund. Lesandinn sem er númer 30.000 fær óvænt og spennandi verðlaun. Sá eða sú heppna þarf að svara innlegginu til að fá verðlaunin. Ekki vera feimin!

fimmtudagur, október 27, 2005

Dekurdagar

Menntaskólaneminn hringdi í mig eldsnemma á þriðjudagsmorguninn. Tilgangurinn var að bjóða mér að koma frítt í nudd. Ég tók því auðvitað fagnandi, enda finnst mér æðislegt að fara í nudd og alltaf gott að fá eitthvað ókeypis. Snyrtinemar eru í prófum þessa dagana og þess vegna fór ég í andlitsbað í gær og í dag komst ég í litun og plokkun. Ég væri alveg til í að fara í nudd í hverri viku og reyndar gæti ég alveg hugsað mér að vera ein af þeim konum sem fara reglulega á snyrtistofu. Ég sé mig alveg fyrir mér sem fína frú sem eyðir tíma sínum í hádegisverð með vinkonunum, líkamsrækt, hárgreiðslu og snyrtingu, svona rétt á milli verslunarferða.

miðvikudagur, október 26, 2005

Tíu ár

Fyrir áratug bjó systir á Flateyri. Ég gleymi því seint hvernig mér leið þegar ég heyrði það í morgunfréttum útvarpsins að snjóflóð hefði fallið á bæinn. Ekki náðist í hana í síma, og strax datt manni það versta í hug. Sem betur fer slapp hún og öll hennar fjölskylda við flóðið. Ég varð samt ekki alveg róleg fyrr en þau fluttu nokkrum árum seinna frá Flateyri í Hnífsdal og þaðan á Ísafjörð. Nú býr familían á Bolungarvík, sem mér finnst lítið skárra sökum snjóflóðahættu og grjóthruns á veginn á milli Víkur og Ísafjarðar. Helst vildi ég að þau ættu heima hér fyrir sunnan, en ég ræð víst ekki öllu. Ég sendi innilegar samúðarkveðjur til allra sem misstu ættingja og vini í snjóflóðinu fyrir tíu árum.

þriðjudagur, október 25, 2005

Kvennafrí

Klukkan rúmlega tvö í gær tók ég mér frí frá hundagæslustörfum og fór með mútter niður í bæ í tilefni af kvennafrídeginum. Systir varð eftir heima að passa voffa, enda fá sjúklingar aldrei frí frá sínu amstri. Við fundum bílastæði á Njálsgötunni og gengum niður Skólavörðustíginn. Kannski er réttara að segja að við höfum mjakast niður Skólavörðustíg og Bankastræti, því að mannmergðin var mikil. Í Austurstræti lentum við í miklum troðningi og lengi vel heyrðum við lítið sem ekkert af ræðuhöldum dagsins. Um fimmleytið var mér orðið kalt, við vorum svangar og mútter þurfti að taka á móti þvottavél, svo að við héldum heim aftur. Ekki skil ég hverjum datt í hug að stefna öllum þessum fjölda inn á Ingólfstorg. Auðvitað átti að halda þetta á Lækjartorgi. En kannski var þátttakan meiri en búist var við, enda voru víst um 50.000 konur saman komnar.

sunnudagur, október 23, 2005

Poppstjarnan

"Á stelpan sem söng í Idolinu heima hérna?" Þetta heyrði ég inn um gluggann í morgun. Ég er nefnilega ekki enn búin að breyta merkingunni á póstkassanum, svo að nafn sálfræðinemans er þar ennþá fyrir neðan nafnið mitt. Fyrr í vikunni las ég umræður á spjallþræði á netinu, þar sem hún var talin líkleg til að ná langt í keppninni. Svona er hún orðin fræg eftir aðeins einn þátt. Ég verð að drífa mig að breyta merkimiðanum, áður en aðdáendabréfin fara að streyma að í hrönnum.

föstudagur, október 21, 2005

Framkvæmdir

Nú eru framkvæmdir byrjaðar á fullu heima hjá mútter. Búið að reisa vinnupalla og verið að tæta málninguna af húsinu. Þvottavélin hennar bilaði í vikunni, en í dag festum við kaup á nýrri vél í Elko. Það er að segja, hún festi kaup á þvottavél og ég fór með sem sérlegur ráðgjafi. Voffilíus beið úti í bíl á meðan. Óljóst er hvernig koma á vélinni niður í þvottahúsið, þar sem vinnupallarnir eru fyrir kjallarahurðinni. En kona getur ekki verið þvottavélarlaus, svo að einhver lausn verður eflaust fundin á málinu. Við mútter ræddum aðeins um liti á höllina, og eins og oft áður kom í ljós að smekkur okkar var gjörólíkur. Í sjálfu sér hefur mín skoðun enga vikt í þessu máli, þar sem ég bý ekki lengur í húsinu.

fimmtudagur, október 20, 2005

Höfuð, herðar, hné og tær

Já, mér er illt á öllum þessum stöðum. Líka í höndunum og handleggjunum. Ég skil ekki alveg af hverju mér er illt í tánum, en þannig er það samt. Nóg væl í bili. Bíllinn er kominn á verkstæði og ég er á Toyota Yaris bílaleigubíl, sem er prýðilegur fyrir utan reykingalyktina sem loðir við bílinn. Þegar hvíta eðalbifreiðin gefur upp öndina væri ég alveg til í að kaupa Yaris. Bílaleigan bauð mér upphaflega einhvers konar jeppling, en ég vildi hann ekki. Mér líkar best við litla bíla. Viðgerðarmaðurinn sagði mér að hann yrði að fórna Daihatsu Charade merkinu aftan á bílnum, þar sem það væri beyglað. "Þú vilt hvort sem er ekkert auglýsa það að bíllinn þinn sé Daihatsu," sagði hann. Greinilegt að hann gerði ráð fyrir því að ég væri illa haldin af bílasnobbi, sem ég er ekki. Ég er þvert á móti mjög stolt af minni Daihatsu bifreið, sem er ódýr, sparneytin og umhverfisvæn.

miðvikudagur, október 19, 2005

Illt

Ég fór á slysó í gærkvöldi og fékk þar snögga þjónustu, aldrei þessu vant. Var skoðuð af lækni sem gaf mér verkjatöflur og bækling um hálstognun. Ekki sá ég neitt í þessum bækling sem ég vissi ekki fyrir. Ég lenti nefnilega í slæmu bílslysi fyrir átta árum, sem endaði með tveimur gjörónýtum bílum og varanlegum meiðslum mínum. Alls var ég rúmlega hálft ár frá vinnu og sex vikur í endurhæfingu á meðferðarstofnun. Meiðslin eru eitthvað sem ég lifi með, en undanfarnar vikur og mánuði hef ég verið næstum verkjalaus, sérstaklega eftir að ég bætti daglegum gönguferðum við æfingaprógrammið. Þess vegna er svo svekkjandi að lenda í þessu aftur núna. Að vísu var áreksturinn í gær ekki nærri eins alvarlegur og hinn fyrri, þannig að ég vona að ég verði jafngóð eftir einhvern tíma. Í augnablikinu er mér hins vegar illt og ég nenni einfaldlega ekki að standa í þessu aftur.

þriðjudagur, október 18, 2005

Óheppni

Mútter hringdi í mig í morgun og við ákváðum að skoða rússnesku sýninguna í Gerðarsafni. Ég fór á hvíta eðalbílnum að sækja hana, en við vorum rétt svo komnar út úr götunni hjá henni þegar ekið var aftan á bílinn. Við fengum ágætis hnykk og nú er mér illt alls staðar. Sýningin var flott, en ég naut hennar ekki sem skyldi vegna háls- og höfuðverkja. Nú þarf ég að fara með pappíra til tryggingafélagsins á morgun og koma bílnum í viðgerð. Allt vegna þess að ég ákvað að vera menningarleg. Ég held að það hvíli einhver bölvun á menningarþátttöku minni.

mánudagur, október 17, 2005

Fjölskyldukvöld

Mútter, sálfræðineminn og kórdrengurinn voru í mat hjá mér í kvöld. Aðaltilefnið var reyndar að horfa á upptöku frá Idolinu, svo að mútter fengi loksins að sjá frammistöðu söngstjörnunnar okkar. Ég lagði til hráefnið í fajitas og lagði á borð, en tók annars sáralítinn þátt í eldamennskunni. Svona eiga matarboð að vera. Þvottavél mútter er biluð, þannig að hún fékk að þvo hjá mér og svo fékk sálfræðineminn að nota þurrkarann. Ég er að hugsa um að opna þvottahús, ef ég opna ekki mexíkanskan veitingastað.

laugardagur, október 15, 2005

Skokk og söngur

Eins og lög gera ráð fyrir fór ég í Sporthúsið í gærkvöldi og eyddi 50 mínútum á göngubretti á meðan ég horfði á Idolið. Þolinmæði mín bar loksins árangur, þar sem sálfræðineminn og vinkona hennar sáust í þættinum. Auðvitað sungu þær eins og englar og komust báðar áfram í 100 manna úrslit í Salnum. Ekki veit ég hvenær verður sýnt þaðan, en ég hyggst halda uppteknum hætti og horfa á þáttinn í ræktinni. Hann er ágætis ástæða til að halda mér á brettinu.

föstudagur, október 14, 2005

Saga um ofbeldi

Við ofurkennarinn fórum á bíó.is forsýningu á myndinni A history of violence í gærkvöldi. Viggo Mortensen var frábær í aðalhlutverkinu sem veitingamaðurinn Tom Stall. Í byrjun virðist myndin sýna hið fullkomna fjölskyldulíf í bandarískum smábæ, en eftir að tveir menn reyna að ræna matsölu Stalls nær ofbeldið yfirhöndinni og allt líf fjölskyldunnar breytist. Fyrir utan Mortensen sýna Ed Harris og Maria Bello mjög góðan leik í myndinni. Persónusköpunin er pottþétt og sagan vekur upp áleitnar spurningar. Ekki voru allir jafn ánægðir með myndina, því að strákur sem sat fyrir aftan okkur sagði stundarhátt í lokin: "Af hverju er ég alltaf að fara á myndir þar sem endirinn er óskiljanlegur?" Þessi mynd er ekki fyrir þá sem vilja dæmigerða Hollywood mynd með "happy" endi, en það er hiklaust hægt að mæla með henni fyrir fólk sem vill sjá góðan leik og áhugaverða sögu, ef viðkomandi þolir að sjá talsvert ofbeldi líka.

fimmtudagur, október 13, 2005

Eitt blað, einn flokkur, einn foringi

Um daginn var mér boðin ókeypis kynningaráskrift að Morgunblaðinu. Ég er hagsýn kona og tók því tilboðinu. Reyndar fannst mér pappírsflóðið á heimilinu orðið fullmikið, þegar blöðin voru orðin þrjú, en ég lét mig samt hafa það að plægja í gegnum þau öll. Í dag fékk ég svo Moggann heim með átta síðna sérblaði um Davíð Oddsson. Foringinn er ábúðarmikill á forsíðunni og svo er farið í gegnum ævi hans og störf í máli og myndum, á þann hátt sem varla sést utan einræðisríkja. Af öðru efni í blaðinu má nefna heilsíðugrein um landsfund Sjálfstæðisflokksins, fréttir af frambjóðendum í prófkjöri flokksins í Reykjavík og auglýsingar frá sömu frambjóðendum. Mér var nóg boðið og tók því upp símtólið, hringdi í Moggann og afpantaði kynningaráskriftina. Þetta blað kemur ekki að óbreyttu aftur inn á mitt heimili, jafnvel þó að borgað væri með því.

miðvikudagur, október 12, 2005

Misjafn smekkur

veggur2 svefnh2
Um helgina tók ég nett framkvæmdakast og málaði af miklum móð. Fyrst lauk ég við að mála baðherbergið, en það hefur verið hálfklárað frá því fyrr á árinu. Baðið er nú alveg skjannahvítt, bæði veggir og gólf. Svo tók ég mig til og málaði einn vegginn í eldhúsinu grábláan. Þegar ég keypti íbúðina málaði ég hana alla ljósa, nema baðið sem var grænt frá hendi fyrri eigenda. Í sumar málaði ég einn vegginn í svefnherberginu fjólugrábláan og nú er líka kominn smá litur á eldhúsið. Ég sýndi mútter afraksturinn. Hennar svar var: "Þetta er eflaust fallegt fyrir þinn smekk." Henni fannst gráblái veggurinn sem sagt ljótur, þar sem hún er ekki hrifin af bláum lit. Ég er hins vegar hæstánægð með litinn, enda prófaði ég eina tíu mismunandi litatóna þar til ég fann hinn eina rétta.

þriðjudagur, október 11, 2005

Lasarus

Ég er eitthvað lasin í maganum í dag. Fann fyrst fyrir þessu í gær, en fór samt á fund í flokknum. Þar fékk ég póst til að bera út í hverfið mitt. Dagur fær að koma með, enda er hann alltaf til í gönguferðir. Þegar ég átti kisu fylgdi hún mér líka í útburðinn. Hún elti mig hús úr húsi og stundum kom með okkur vinur hennar, sem var högni úr næstu götu. Svona eftir á að hyggja hlýtur þetta að hafa verið frekar fyndin sjón, kona með blaðabunka og tvo ketti í eftirdragi.

laugardagur, október 08, 2005

Prófið

Ég fékk 8,0 í prófinu sem ég tók í síðustu viku. Meðaleinkunn var 6,5 í hópnum, en hæsta einkunnin var 9,0 og sú lægsta 3,0. Ég held að ég megi vel við una, miðað við það að ég las næstum ekkert fyrir prófið. Fletti aðeins í gegnum bókina daginn fyrir próf, renndi yfir tvær greinar af fimm og horfði á tvo fyrirlestra á netinu. Aldrei þessu vant var ég ekki sú fyrsta sem kláraði prófið, en ég var samt með þeim fyrstu. Ef til væri vinna sem fælist í því að taka próf, þá væri ég rétta manneskjan í starfið.

föstudagur, október 07, 2005

Latibær

Getur einhver útskýrt fyrir mér hvernig stendur á því að Latibær eru sýndur á besta tíma í Ríkissjónvarpinu? Er barnaefni rétta sjónvarpsefnið klukkan átta á föstudagskvöldum?

fimmtudagur, október 06, 2005

Verður að elska hunda

Mér tókst loksins að draga Kókó í Sporthúsið í gær. Með í för var vinkona hennar úr vinnunni. Eftir ræktina fórum við í bíó með leikskólakennaranum. Við sáum myndina "Must love dogs", sem er sæt og rómantísk gamanmynd. John Cusack er alltaf jafn krúttlegur og ég hef kunnað að meta leikhæfileika Diane Lane síðan ég sá hana í The Outsiders fyrir mörgum árum. Í þessari mynd leika þau par á fertugsaldri sem kynnist í gegnum einkamálasíðu á netinu. Bæði eru þau nýfráskilin og í sárum, en ástin sigrar að lokum eins og í öllum svona myndum. Verst að svona rómantískir, myndarlegir og hreinskilnir heimspekingar eru bara til í bíómyndum en ekki í raunveruleikanum.

þriðjudagur, október 04, 2005

Óvelkomin

Talandi um samfélag sem er óvinveitt dýrum. Ég fer með Dag litla í margar gönguferðir á dag, til þess að við fáum bæði næga hreyfingu og útivist. Í göngufjarlægð frá heimili okkar er lítill verslunarkjarni með matvöruverslun, kökubúð og videoleigu. Ég hef kurteislega spurt afgreiðslufólk í þessum verslunum hvort að ég mætti koma með hundinn inn ef ég héldi á honum og alltaf fengið jákvætt svar. Í dag fórum við á röltið í hádeginu og svo í matvörubúðina. Þá bar svo við að afgreiðslumaðurinn sagði að það mætti ekki vera með hunda í búðinni. Ég svaraði því til að ég hefði alltaf fengið leyfi til þess, en hann sagði að það hefðu þá verið mistök hjá viðkomandi starfsfólki. Þá veit ég það. Pínulitlir smáhundar sem gelta ekki og rúmast í vasa eru ekki velkomnir í 10-11. Sem er frekar kaldhæðnislegt miðað við það að 10-11 notar einmitt mann með smáhund í auglýsingaherferð sinni. En það er sitt hvað, ímynd og veruleiki. Fyrst ég get ekki farið með hundinn út í búð get ég alveg eins sest upp í bílinn og verslað í Bónus, sem er mun ódýrari verslun hvort sem er.

mánudagur, október 03, 2005

Skráning

hettupeysa
Þá er Dagur litli orðinn löglegur. Ég fór í dag og sótti um leyfi til hundahalds, skilaði inn öllum nauðsynlegum pappírum og greiddi skráningargjald. Nú verð ég bara að vona að enginn andstæðingur hundahalds flytji í blokkina. Íbúðin fyrir ofan mig er nefnilega á leiðinni á sölu og stundum lendir fólk í því að nýir nágrannar vilja ekki samþykkja gæludýrin sem fyrir eru í húsinu. Lögin um fjöleignahús virðast því miður vera þannig að allur rétturinn er hjá þeim sem ekki vilja dýr, en ekki hjá dýraeigendum.

sunnudagur, október 02, 2005

Bannaðar bækur?

Sá þennan lista hjá Nönnu og Hildigunni. Ekki veit ég hvort þessar bækur eru í alvöru bannaðar einhvers staðar, en það er samt forvitnilegt að sjá hverjar þeirra fólk hefur lesið. Sumar af bókunum hef ég þrælast í gegnum af tómri þrjósku. Ég las til dæmis Kóraninn eins og hann lagði sig á tveimur tungumálum og Biblíuna líka. Þá las ég Mein Kampf, þó að hún væri enginn skemmtilestur.

A list of the top 110 banned books. Bold the ones you've read. Italicize the ones you've read part of. Read more. Convince others to read some. Fear no art.

#1 The Bible
#2 Huckleberry Finn by Mark Twain
#3 Don Quixote by Miguel de Cervantes
#4 The Koran
#5 Arabian Nights
#6 Tom Sawyer by Mark Twain
#7 Gulliver's Travels by Jonathan Swift
#8 Canterbury Tales by Geoffrey Chaucer
#9 Scarlet Letter by Nathaniel Hawthorne
#10 Leaves of Grass by Walt Whitman
#11 Prince by Niccolò Machiavelli
#12 Uncle Tom's Cabin by Harriet Beecher Stowe
#13 Diary of a Young Girl by Anne Frank
#14 Madame Bovary by Gustave Flaubert
#15 Oliver Twist by Charles Dickens
#16 Les Misérables by Victor Hugo
#17 Dracula by Bram Stoker
#18 Autobiography by Benjamin Franklin
#19 Tom Jones by Henry Fielding
#20 Essays by Michel de Montaigne
#21 Grapes of Wrath by John Steinbeck
#22 History of the Decline and Fall of the Roman Empire by Edward Gibbon
#23 Tess of the D'Urbervilles by Thomas Hardy
#24 Origin of Species by Charles Darwin
#25 Ulysses by James Joyce
#26 Decameron by Giovanni Boccaccio
#27 Animal Farm by George Orwell
#28 Nineteen Eighty-Four by George Orwell
#29 Candide by Voltaire
#30 To Kill a Mockingbird by Harper Lee
#31 Analects by Confucius
#32 Dubliners by James Joyce
#33 Of Mice and Men by John Steinbeck
#34 Farewell to Arms by Ernest Hemingway
#35 Red and the Black by Stendhal
#36 Capital by Karl Marx
#37 Flowers of Evil by Charles Baudelaire
#38 Adventures of Sherlock Holmes by Sir Arthur Conan Doyle
#39 Lady Chatterley's Lover by D. H. Lawrence
#40 Brave New World by Aldous Huxley
#41 Sister Carrie by Theodore Dreiser
#42 Gone with the Wind by Margaret Mitchell
#43 Jungle by Upton Sinclair
#44 All Quiet on the Western Front by Erich Maria Remarque
#45 Communist Manifesto by Karl Marx
#46 Lord of the Flies by William Golding
#47 Diary by Samuel Pepys
#48 Sun Also Rises by Ernest Hemingway
#49 Jude the Obscure by Thomas Hardy
#50 Fahrenheit 451 by Ray Bradbury
#51 Doctor Zhivago by Boris Pasternak
#52 Critique of Pure Reason by Immanuel Kant
#53 One Flew Over the Cuckoo's Nest by Ken Kesey
#54 Praise of Folly by Desiderius Erasmus
#55 Catch-22 by Joseph Heller
#56 Autobiography of Malcolm X by Malcolm X
#57 Color Purple by Alice Walker
#58 Catcher in the Rye by J. D. Salinger
#59 Essay Concerning Human Understanding by John Locke
#60 Bluest Eyes by Toni Morrison
#61 Moll Flanders by Daniel Defoe
#62 One Day in the Life of Ivan Denisovich by Aleksandr Solzhenitsyn
#63 East of Eden by John Steinbeck
#64 Invisible Man by Ralph Ellison
#65 I Know Why the Caged Bird Sings by Maya Angelou
#66 Confessions by Jean Jacques Rousseau
#67 Gargantua and Pantagruel by François Rabelais
#68 Leviathan by Thomas Hobbes
#69 The Talmud
#70 Social Contract by Jean Jacques Rousseau
#71 Bridge to Terabithia by Katherine Paterson
#72 Women in Love by D. H. Lawrence
#73 American Tragedy by Theodore Dreiser
#74 Mein Kampf by Adolf Hitler
#75 A Separate Peace by John Knowle
s#76 Bell Jar by Sylvia Plath
#77 Red Pony by John Steinbeck
#78 Popol Vuh
#79 Affluent Society by John Kenneth Galbraith
#80 Satyricon by Petronius
#81 James and the Giant Peach by Roald Dahl
#82 Lolita by Vladimir Nabokov
#83 Black Boy by Richard Wright
#84 Spirit of the Laws by Charles de Secondat Baron de Montesquieu
#85 Slaughterhouse Five by Kurt Vonnegut
#86 Julie of the Wolves by Jean Craighead George
#87 Metaphysics by Aristotle
#88 Little House on the Prairie by Laura Ingalls Wilder
#89 Institutes of the Christian Religion by Jean Calvin
#90 Steppenwolf by Hermann Hesse
#91 Power and the Glory by Graham Greene
#92 Sanctuary by William Faulkner
#93 As I Lay Dying by William Faulkner
#94 Black Like Me by John Howard Griffin
#95 Sylvester and the Magic Pebble by William Steig
#96 Sorrows of Young Werther by Johann Wolfgang von Goethe
#97 General Introduction to Psychoanalysis by Sigmund Freud
#98 Handmaid's Tale by Margaret Atwood
#99 Bury My Heart at Wounded Knee by Dee Alexander Brown
#100 Clockwork Orange by Anthony Burgess
#101 Autobiography of Miss Jane Pittman by Ernest J. Gaines
#102 Émile Jean by Jacques Rousseau
#103 Nana by Émile Zola
#104 Chocolate War by Robert Cormier
#105 Go Tell It on the Mountain by James Baldwin
#106 Gulag Archipelago by Aleksandr Solzhenitsyn
#107 Stranger in a Strange Land by Robert A. Heinlein
#108 Day No Pigs Would Die by Robert Peck
#109 Ox-Bow Incident by Walter Van Tilburg Clark
#110 Flowers for Algernon by Daniel Keyes

laugardagur, október 01, 2005

Söngfuglinn

Við ofurkennarinn horfðum á Idolið í gærkvöldi, en þrátt fyrir árvökul augu og endursýningu á Stöð 2 plús, tókst mér ekki að koma auga á sálfræðinemann. Þarna voru hundruð ungmenna að keppa á Loftleiðum og stærsti hlutinn af þættinum fór í að sýna krakka sem voru ýmist laglaus eða að deyja úr stressi. Ein ung stúlka brast í grát og eiginlega finnst mér sextán ára unglingar vera full ungir til að taka þátt í þessum þætti. Yngri krakkarnir þola síður höfnunina og gagnrýnina sem fylgir Idolinu. En ég mun halda áfram að horfa í þeirri von að sjá loksins hina einu sönnu Idolstjórnu á skjánum.


Því meðan til er böl sem bætt þú gast

og barist var á meðan hjá þú sast

er ólán heimsins einnig þér að kenna

Tómas Guðmundsson
  • Myndasíðan mín
  • Ísland
  • Hundalíf
  • Palestína
  • www.flickr.com
    This is a Flickr badge showing public photos from farfuglinn. Make your own badge here.
  • Gönguferð á sandi
  • Brain Damage
  • Eclipse
  • Puff The Magic Dragon
  • Windmills Of Your Mind
  • The Blower's Daughter

  • Harpa
  • Hildigunnur
  • Nanna
  • Þórdís
  • Telma
  • Afi
  • Alla
  • Anna
  • Arngrímur
  • Ásta
  • Baun
  • Beta
  • Einar J.
  • Ella Stína
  • Elías
  • Erla
  • Erna
  • Erna E.
  • Eyja
  • Guðný Anna
  • Gurrí
  • Gurrý Guðfinns
  • Gvendarbrunnur
  • Hanna litla
  • Harpa Hreins
  • Heiða B.
  • Hildur
  • Hreinn
  • Hryssa
  • Hugskot
  • Ibba Sig.
  • Ingibjörg
  • Kalli
  • Kata
  • Kisuvinur
  • Kitta
  • Kókó
  • Lilja
  • Ljúfa
  • Matti
  • París
  • Pálína
  • Pönk
  • Silja
  • Snilldur
  • Steingerður
  • Svanurinn
  • Tóta litla
  • Vélstýran


  • Locations of visitors to this page
  • Global voices
  • OneVoice Movement
  • Palestine blogs

  • Fésbókin
  • Myndasíða Hörpu
  • Myndasíða Einars
  • Parísardaman
  • Brall í bauk
  • Hugarflug
  • Hugsandi
  • Ísland-Palestína
  • Vinir Indlands
  • Name: farfuglinn
    Location: Iceland

    Eilífðarstúdent, íbúðareigandi, yngri systir, dramadrottning, lestrarhestur, bíómyndafíkill og áhugamanneskja um ferðalög með meiru. Lönd sem ég hef komið til Evrópulönd sem ég hef heimsótt Bandarísk fylki sem ég hef komið til

    Powered by Blogger

    Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Free Counter
    Advanced Technology Institute