Búin með Potterinn
Harry Potter bókin beið eftir mér þegar ég kom heim á föstudaginn. Ég tók strax til við lesturinn á föstudagskvöldið og nú er ég búin með bókina. Þetta er hin ágætasta saga, þó að hún sé kannski ekki eins spennandi og sum fyrri bindin. En Jóhönnu tekst ennþá að draga mann inn í galdraheiminn og það er afrek út af fyrir sig. Svo hlýt ég að vera einstaklega treggáfuð, þar sem ég sá alls ekki fyrir hver myndi drepa hvern í bókinni, eins og systir gerði. Annars hef ég lítið gert nú um helgina, annað en að þvo þvott og sofa. Sálfræðineminn leit inn í kvöld ásamt fylgdarsveini. Ég notaði tækifærið og gaf henni eyrnalokka sem ég keypti í Flórens. Hún var svo elskuleg að passa íbúðina mína og taka á móti bókinni á meðan ég var í fríi, svo að það mátti ekki minna vera.




