Uppskeran
Eins og Tóta pönk varð ég fyrir smá vonbrigðum með jólakortauppskeruna. Ég sendi yfir 20 jólakort en uppskar innan við 10 kort til baka. Held að ég hafi ekki fengið færri jólakort síðan ég flutti heim frá Bandaríkjunum fyrir um áratug. Meira að segja flokkurinn og þingmennirnir, sem alltaf hafa sent mér kort, sendu mér ekkert þessi jólin. Kannski er kominn tími til að skipta um flokk, fyrst að hann nennir ekki einu sinni að senda manni jólakort lengur. Mig grunar reyndar að einhverjir hafi farið í þjóðskrá og sent kortin á lögheimilið mitt. En ég fékk þó þokkalega uppskeru í jólapakkadeildinni, miðað við aldur og fjölskyldustærð.
Þetta fékk ég í jólagjöf:
Bókina Íslendingar
Bókina Arabíukonur, áritaða af höfundi
Bók um gæludýr
Jóladiskinn með systrunum þremur (honum verður skipt)
Tvo konfektkassa (við erum langt komin með annan þeirra)
Light blue ilmgel frá Dolce & Gabbana
Náttbuxur, bleika sokka og hárskraut (enginn jólaköttur á mínu heimili)
Lord of the Rings I og II, special edition á DVD
Lampa
Parket


