mánudagur, nóvember 29, 2004

Framsóknarmaður ársins

Kristinn H. Gunnarsson er að mala Dóra og skósveina hans í kosningunni um Framsóknarmann ársins á heimasíðu ungra Frammara. Þetta er óneitanlega skemmtilegt. Vonandi verður þessi kosning ekki til þess að sami tölvuvírus og gerði út af við Maddömuna leggist á heimasíðu SUF.

sunnudagur, nóvember 28, 2004

Helgin var ömurleg

Ég er búin að vera með lagið Lög unga fólsins á heilanum í dag, en að sjálfsögðu í frábærri útgáfu Heiðu og Ununar en ekki með Vælon sem ætti að vera "seen but not heard". Ekki það að helgin mín hafi verið ömurleg. Þvert á móti. Ég fór í afmæli stígvéluðu þingkonunnar í gærkvöldi. Þaðan fór ég með fríðra kvenna föruneyti á Vegamót þar sem snæddur var afmæliskvöldverður. Ég fékk samtals sjö flottar gjafir í vikunni, sem hlýtur að teljast góður árangur miðað við það að ég hélt enga veislu. Í morgun vaknaði ég kl. 9 til að læra. Eflaust er margt verra en að læra reikningshald í þynnku á sunnudagsmorgni, til dæmis að búa í Fallujah eða að vera Sjálfstæðiskona. Næst á dagskránni var heimsókn til að skoða hálfsmánaðar gamlan svein og foreldra hans sem búa á hjara veraldar (í Grafarvogi). Ég stakk upp á nafninu Álfur við foreldra piltsins, sem voru ekki mjög hrifnir af þeirri tillögu. Skrítið. Deginum lauk með jólahlaðborði á Argentínu með vinnufélögunum, þar sem ég viðraði nýja og flotta ponsjóið sem listakonan góða gaf mér í afmælisgjöf, snæddi hóflega og drakk gos. Ég vona að höfuðverkurinn hverfi einhvern tímann í vikunni. Það er þó ekki víst, þar sem meira reikningshald er framundan næstu daga.

laugardagur, nóvember 27, 2004

All I want for Christmas...

... is you. Ég veit að Deppinn er frátekinn. Það getur nú breyst. Nei, ég segi bara svona. Er ekki til íslensk útgáfa af honum? Allar ábendingar eru vel þegnar. Eða íslensk útgáfa af...tja...Jude Law, Viggo Mortensen eða Brad Pitt. Hann verður líka að vera skemmtilegur, gáfaður, góður, einhleypur, vinstri sinnaður og með listræna hæfileika. Er ég nokkuð að biðja um mikið?

ooh ah
Johnny Depp- now this man is the most sexiest man
alive, well done you chose well.

^^_*Which Hollywood hunk is 4 u?*_^^(with sexy pics) 4 new added
brought to you by Quizilla

föstudagur, nóvember 26, 2004

Afmæli ofurkonunnar

Hin síunga Tina Turner á afmæli í dag. Edda Heiðrún Backman á afmæli á morgun. Katrín Júlíusdóttir þingkona varð þrítug á þriðjudaginn og heldur upp á það á morgun. Þórunn Sveinbjarnardóttir þingkona átti afmæli á mánudaginn og Björk Guðmundsdóttir söngkona og fyrrum bekkjarfélagi systur varð 39 ára sl. sunnudag. Sem sagt: Það eru sérstaklega hæfileikaríkar, glæsilegar og klárar dömur sem eiga afmæli í þessari viku.

fimmtudagur, nóvember 25, 2004

Er þetta ég?

Það er spurningin. En ég er alla vega snilli. Var að fá niðurstöðurnar úr hagfræðiprófinu, þessu sem ég tók þegar ég var með hita. Ég fékk 9,8 og var í sæti 1-2 af 60 nemendum. Nú þarf ég bara að vita hver hinn er og gera út af við hann.

Take the quiz: "The MOOD quiz! (With cool blinkies!)"

Hip
You are all about style. People mis-interpret that with being stuck up. But who cares? You don't need anyone! You're on your way to fame.

Óskalistinn

Þar sem afmælið mitt og jólin eru á næstu grösum, hafa mér borist nokkrar fyrirspurnir (ókei, ein) varðandi það hvaða gjafir mig langar í. Hér kemur óskalistinn:
1. iPod
2. AirPort Express
3. Bíltæki
4. Plasmasjónvarp
5. Reiðhjól
6. Nýr sófi
7. Heimabíó
8. Stafræn myndavél
9. Myndbandstökuvél (já, ég elska græjur)
10. Bengalköttur
11. West Highland White Terrier hvolpur

Og hér eru svo gjafirnar sem ég á kannski einhvern séns í að fá:
12. Friends þætti, LOTR eða Star Wars á DVD (já, míns á DVD tæki núna).
13. Heklað svart sjal (hint, hint)
14. Náttbuxur úr bómull, helst frá Joe Boxer
15. Diska og skálar úr stellinu
16. Kristalsglös
17. Eyrnalokkar, helst gull (þoli ekki silfur)
18. Gjafakort fyrir nudd eða snyrtimeðferð í Saga Spa (ég er orðin húkkt á þessu).
19. Kleifarvatn eða einhver önnur góð bók
20. Hárvörur eða snyrtivörur frá Aveda

miðvikudagur, nóvember 24, 2004

Gúmmíborgin

Ég átti erindi í Laugardalinn í gær. Grasagarðurinn er ekki síður fallegur á veturna en á sumrin. Hins vegar dró það úr töfrum garðsins að dalurinn lyktaði af brenndum gúmmídekkjum, eins og hálf borgin gerði reyndar í gær og fyrrinótt. Ég er ekki alveg að skilja endurvinnslu sem felst í því að stafla þúsundum tonna af dekkjum saman í háan haug. En það er svo margt sem ég skil ekki.

þriðjudagur, nóvember 23, 2004

Martröð

Mig dreymdi í nótt að ég hefði gift mig. Það var einhver skyndiákvörðun í draumnum, sem ég sá verulega eftir. Eyddi afganginum af draumnum í það að reyna að forðast nýbakaðan eiginmann minn, þegar ég var ekki að reyna að sannfæra hann um að við hefðum gert gríðarleg mistök. Um leið og ég var gift sá ég heldur ekkert annað en myndarlega karlmenn í hverju horni. Þarna held ég að sé komið viðhorf mitt til hjónabandsins í hnotskurn. Mér létti mikið þegar ég loksins vaknaði í morgun, alsæl með að vera ennþá einhleyp.

mánudagur, nóvember 22, 2004

Mótmælum stríðsglæpum

Guðmundur Erlingsson hefur birt á blogginu sínu dæmi um bréf, sem hægt er að senda íslenskum stjórnvöldum til þess að mótmæla stríðsglæpum í Fallujah. Hann sendi tölvupóst á forsætisráðherra, utanríkisráðherra og þingmenn í utanríkismálanefnd Alþingis sem innihélt eftirfarandi bréf:

Hæstvirtur forsætisráðherra, hæstvirtur utanríkisráðherra og hæstvirtir þingmenn í utanríkismálanefnd Alþingis:

Það hefur verið framinn hræðilegur stríðsglæpur í borginni Fallujah í Írak. Við höfum verið gerð meðsek í þessum og fleiri voðaverkum að okkur forspurðum. Ég mótmæli þessum glæp af öllu hjarta, og krefst þess að íslenska ríkisstjórnin komi mótmælum á framfæri við bandarísk stjórnvöld og krefjist þess að aðgerðum verði hætt nú þegar, og að stuðningur íslendinga við stríðið í Írak verði dreginn til baka.

Bréfið er sent á eftirfarandi netföng:
david@althingi.is, halldor@althingi.is, aoa@althingi.is, bryndish@althingi.is, dagny@althingi.is, drifah@althingi.is, einarg@althingi.is, gak@althingi.is, gudlaugurthor@althingi.is, garni@althingi.is, gunnb@althingi.is, hjalmara@althingi.is, jbjart@althingi.is, rannveig@althingi.is, skk@althingi.is, siv@althingi.is, solveigp@althingi.is, sjs@althingi.is, tsv@althingi.is, ossur@althingi.is

sunnudagur, nóvember 21, 2004

Þetta er allt að koma

Fór í Þjóðleikhúsið í gærkvöldi með fröken Kennedy og samstarfskonu hennar. Mér finnst alltaf jafn gaman að koma í Þjóðleikhúsið, enda tengjast margar ánægjulegar bernskuminningar þessu húsi. Við sáum leikritið Þetta er allt að koma, sem er leikgerð Baltasars Kormáks á bók Hallgríms Helgasonar. Mér hefur alltaf fundist þessi bók vera langbesta bók Hallgríms. Helsti galli hennar var lengdin og orðaleikirnir, en í leikgerðinni er öllum óþarfa sleppt og eftir situr létt og skemmtileg samtímasaga. Ég er ekki frá því að Baltasar hafi öllu meiri samúð með persónunum en Hallgrímur. Að minnsta kosti gerir hann aðalpersónurnar mannlegri en þær voru í bókinni. Ólafía Hrönn er ekkert annað en snillingur og hún heldur þessari sýningu uppi, að öðrum ólöstuðum. Valdimar Flygering var góður sem pabbi aðalsöguhetjunnar en fór á kostum sem ítalski húsbóndinn Stefano og tók sig vel út á sundskýlunni. Þröstur Leó var hrikalega fyndinn sem Labbi föðurbróðir, Elva Ósk var fín sem mamman og Björn Thors var sannfærandi sem byltingarsinnaði menntaskólaneminn Harði. Edda Arnljótsdóttir var svo alveg óborganleg sem kórstýran Mirra og Þórunn Erna Clausen var sæt í aðalhlutverkinu, en ekki alveg nógu frek eða afgerandi sem Ragnheiður Birna. Leikmyndin var frábærlega útfærð og átti stóran hlut í því hvað sýningin var vel heppnuð. Leikhúsferðin var afmælisgjöf og kann ég bestu þakkir fyrir ánægjulega kvöldstund.

laugardagur, nóvember 20, 2004

Frost

Mikið svakalega er mér kalt þessa dagana. Ég mætti í fyrsta skiptið í flíspeysu í vinnuna í gær, og komst að því að allir aðrir á vinnustaðnum voru líka í flíspeysum. Mikið er ég fegin að vera í vinnu þar sem mér er ekki skylt að klæðast einhverri þunnri dragt svona dags daglega. Þegar ég ók heim í gær eftir vinnu saknaði ég þess að hafa ekki teppi í bílnum. Mér var hlýtt á fótunum í nýju loðfóðruðu stígvélunum mínum, hendurnar voru í góðu standi inni í loðfóðruðum leðurhönskum og búkurinn var vel haldinn inni í Gap-úlpunni sem ég keypti í Edinborg í fyrra, en lærin voru frekar köld inni í gallabuxunum. Ég þoli nefnilega illa sokkabuxur og svoleiðis fyrirbæri. Þarna hefði verið gott að hafa teppi til að breiða ofan á sig. Samkvæmt fréttum þarf að fara heila öld aftur í tímann til að finna kaldari nótt í nóvember á höfuðborgarsvæðinu heldur en fyrrinótt, en þá fór frostið niður í 15 stig. Kannski verður þessi vetur einhvern tímann frægur sem frostaveturinn mikli 2004?

föstudagur, nóvember 19, 2004

Ef ég væri kennari

Ef ég væri grunnskólakennari, væri ég eflaust á þunglyndislyfjum. Þá væri ég líka að skoða nýjan samning kennara þessa dagana og velta fyrir mér atkvæði mínu. Hvað myndi ég gera, ef ég hefði atkvæðisrétt? Það er auðvelt að segja að ég léti ekki kúga mig með hótunum um gerðardóm. Ég er ekki kennari og bý ekki við þann veruleika að vera með minna en 200 þúsund krónur í mánaðarlaun. Ég þarf ekki að ákveða hvort að ég vil fella litla launahækkun núna og eiga á hættu að fá enn minna í mars. Ég vil trúa því að ég myndi fella samninginn, væri ég kennari í íslenskum grunnskóla. En ég myndi örugglega leita mér að annarri vinnu.

fimmtudagur, nóvember 18, 2004

New York, New York

Spurning hvort að maður vill ekki frekar vera Orlando eða Los Angeles í þessu veðri. En það er alltaf gaman í New York.

Take the quiz: "Which American City Are You?"

New York
You're competitive, you like to take it straight to the fight. You gotta have it all or die trying.

miðvikudagur, nóvember 17, 2004

Fjárans snjór

Það getur vel verið að snjór sé fallegur á póstkortum. En í raunveruleikanum er hann mest kaldur og blautur. Ég átti mér einskis ills von í gær, þegar ég fór heim úr vinnunni. Var í lágum skóm, sem fljótlega fylltust af snjó á meðan ég var að sópa snjóhrúgunni af bílnum. Á leiðinni heim bráðnaði snjórinn í skónum mínum hægt og rólega. Það var köld manneskja með blauta fætur sem kom heim um sexleytið. Í morgun gat ég svo ekki opnað bílinn. Lásarnir voru frosnir fastir. Eftir mikið jaml, japl og fuður tókst mér að opna hurðina farþegamegin. Ég varð að klöngrast yfir í bílstjórasætið í síðri kápu og háhæluðum stígvélum. Ekki það skemmtilegasta sem ég geri. Mér finnst að snjór eigi bara að koma einu sinni á ári. Hann á að koma á aðfangadag og vera fram á nýársdag, svo að við fáum hvít jól og áramót. Svo á að vora strax 2. janúar. Þannig væri það, ef ég fengi að ráða.

þriðjudagur, nóvember 16, 2004

Lottó

Ég keypti lottómiða á laugardaginn, sem ég geri örsjaldan. Vinningurinn var sexfaldur og ég gat alveg notað 37 milljónir. Ég var búin að heita á systur að hún fengi nýjan stiga, ef ég ynni stóra vinninginn. Þá væri hún kannski ekki alltaf að detta í fína húsinu sínu. En ekki vann ég þann stóra. Í stað mín vann einhver Skagamaður. Það er greinilegt að hún systir mín er engin Strandarkirkja. Ég fékk reyndar þrjá rétta. Kannski að ég gefi henni kúlur í jólagjöf.

Samkennd

Kennarar í skóla ofurkennarans mættu ekki til starfa í gær. Hins vegar mættu þeir í dag. Kennarar í skóla systur mættu í gær, en þeir voru í sorgarklæðum. Mikið skil ég þau vel. Þegar ég byrjaði í mínu fyrsta starfi að loknu háskólanámi, gleymdi ég alveg að ræða um launin. Ég var bara svo fegin að fá vinnu sem tengdist náminu og það strax eftir að ég kom til landsins. Fyrsta útborgunardaginn varð ég fyrir áfalli. Launin voru svo lág, að ég hefði fengið meira fyrir að afgreiða í sjoppu. Kaupið mitt var lítið hærra en atvinnuleysisbætur. Mér varð svo mikið um að ég ákvað að vera heima daginn sem ég fékk útborgað. Yfirmanni mínum tókst þó að fá mig aftur í vinnuna. Í sameiningu náðum við að hækka launin mín með alls kyns aukagreiðslum og sporslum. Þegar ég hætti, rúmum fjórum árum síðar, var ég með þokkaleg laun. Kennarar sjá hins vegar ekki fram á að fá þokkaleg laun á næstunni. Þeir fá ekki óunna yfirvinnu eða bílapeninga til að hífa launin sín upp. Því skil ég vel að sumir kennarar komist ekki fram úr rúminu. Í raun skil ég varla hvers vegna nokkur þeirra mætir í vinnuna.

mánudagur, nóvember 15, 2004

Fullkomið í fjórða sinn

Jæja, þá er best að klára listann. Margir hafa komið að máli við mig... Svo er líka fínt að þurfa ekki að láta sér detta neitt nýtt og frumlegt í hug til að skrifa um.

do you...

smoke? - Nei
do drugs? - Bara þessi löglegu.
pray? - Nei, til hvers?
have a job? – Já, alla vega eins og er.
attend church? – Fermingar, skírnir, jarðarfarir, brúðkaup - annars ekki.

have you ever...
been in love? - Hvað er ást?
had a medical emergency? - Nei.
had surgery? - Já.
swam in the dark? - Já, og Sundlaug Garðarbæjar bíður þess aldrei bætur.
been to a bonfire? - Já já. Hér á landi og erlendis.
got drunk? - Er ég Íslendingur, eða er ég Íslendingur?
ran away from home? - Skipulagði það þegar ég var ca. tíu ára eftir leiðbeiningum úr Skátabókinni.
played strip poker? - Roðn. Já. En ég vann.
gotten beat up? - Nei.
beaten someone up?- Glætan.
been onstage? - Já já.
pulled an all nighter? - Oft.
been on radio or tv? - Já, því miður.
been in a mosh pit? - Er ég sveittur, karlkyns þungarokkari? Nei.

do you have any gay or lesbian friends? - Örugglega.

describe your...

first kiss – Held að það hafi verið í aftursætinu á bíl á rúntinum.
wallet - Nýtt og svart, frá London Leathergoods.
coffee - Nauts. Diet kók er málið.
shoes – Ný, svört, háhæluð stígvél sem meiða mig. Beauty is pain.
cologne – Á svo mörg ilmvötn núna að það hálfa væri nóg.

in the last 24 hours you have...

cried - Já.
bought anything - Já.
gotten sick - Ég hef verið lasin, en það er að lagast.
sang - Já.
been kissed - Nei.
felt stupid - Nei, ég er svoddan snilli.
talked to an ex - Nei, til hvers?
talked to someone you have a crush on - Hvað er það?
missed someone - Já.
hugged someone – Nei.

sunnudagur, nóvember 14, 2004

Þrenning

Er ekki allt þegar þrennt er? Að vísu eru fleiri spurningar á listanum, en þetta er áreiðanlega miklu meira en nokkurn mann langar að vita um mig.

had a hard time getting over somone? – Ég, sem hef unnað meira en nokkur má, minnist ei framar neins sem ég hef unnað.
been hurt? Ekkert sem ekki hefur lagast með tímanum.
your greatest regret? – Reyni að sjá ekki eftir neinu.

your cd player has in it right now? – Man who sold the world með Nirvana í tölvunni.
if you were a crayon what color would you be? - Hver vill vera vaxlitur?
what makes you happy? – Góðir vinir, fjölskyldan (sérstaklega sæta frænkan), ferðalög, góður matur, tónlist, bíómyndir og góðar bækur.

whats the next cd you're gonna get? - Kaupi frekar eitthvað á itunes. Kannski Travis.
seven things in your room? - Miklu fleiri en sjö bækur um Evrópusambandið og um það hvernig á að skrifa mastersritgerð.
seven things to do before you die... - Klára mastersritgerðina, ferðast um Ástralíu, fara til Kína, fara til Brasilíu, ferðast um Afríku, skrifa bók, sigra heiminn.

top seven things you say the most... - Nei, já, kalt, þreytt, svöng, nammi, mamma.

Meira um mig

Ég ætla að svara nokkrum spurningum í viðbót af spurningalistanum, bara af því að Hildigunnur bað um það. Hún var svo svakalega dugleg að hún svaraði öllum listanum í einu á sínu bloggi.

what are you wearing? - Íþróttabuxum og hettupeysu. Hey, það er helgi og ég er heima.
what song are you listening to? – Lagið í einhverri ömurlegri auglýsingu á Skjá einum.
taste is in your mouth? -Diet kók.
whats the weather like? – Vont veður og kalt. Vindur.
how are you? – Lasin og með hita. En alltaf jafn sæt.
get motion sickness? – Einu sinni, þegar ég fór með rörinu til Ísó.
have a bad habit? – Diet kók.
get along with your parents? – Ja.
like to drive? – Elska að aka.
boyfriend – Hvað er nú það?
girlfriend – Margar vinkonur, en ekki þannig.
children? – Ekki í þessu lífi.

Hópsálin

Það er allir bloggarar og bróðir þeirra með þennan spurningalista, meira að segja Hnakkus, svo að hópsálin í mér getur ekki látið sitt eftir liggja.

ever had a song written about you? - Litla, sæta ljúfan góða, með ljósa hárið.
what song makes you cry? - Söknuður.
what song makes you happy? – Sódóma.
height - 174. Eða 175. Eða eitthvað.
hair color – Sjá spurningu eitt.
eye color - Þau minna á fjallavötnin fagurblá.
piercings - Göt í eyrunum.
tattoos - Nei, ég er of hrædd við sársauka.

Nenni ekki að svara fleiru í bili.

laugardagur, nóvember 13, 2004

Kennaraflensa

Ég er veik. Eiginlega held ég að ég sé með kennaraflensuna. Samt er ég ekki kennari. Ég hef bara svo mikla samúð með kennurum, enda eru bæði systir mín og góð vinkona mín kennarar, auk þess sem önnur vinkona mín er kennaranemi. Mér fór að líða illa á fimmtudagskvöldið og þá var ég strax komin með hita. Í gær var ég með höfuðverk og í dag hefur ógleði blandað sér í spilið. Vonandi mun mér þó batna fyrir mánudag, enda hef ég engan tíma til að vera veik. En það gæti tekið lengri tíma fyrir suma kennara að jafna sig, enda leggst kennaraflensan eðli málsins samkvæmt þyngra á kennara en aðstandendur.

föstudagur, nóvember 12, 2004

Við munum alltaf eiga París

Ég sem hélt að ég myndi fá "sjö ár í eyðimörkinni" eða einhverja álíka niðurstöðu. En Casablanca er fín mynd sem hefur lengi verið í uppáhaldi hjá mér, svo þetta á vel við. Ég var með Casablanca plakat upp á vegg á heimavistinni minni í háskólanum fyrir um það bil 100 árum. Svo píndi ég fyrsta alvöru kærastann minn til þess að leigja myndina og horfa á hana með mér. Hann kvartaði ekkert mjög mikið.

casablanca
"You must remember this, a kiss is still a
kiss". Your romance is Casablanca. A
classic story of love in trying times, chock
full of both cynicism and hope. You obviously
believe in true love, but you're also
constantly aware of practicality and societal
expectations. That's not always fun, but at
least it's realistic. Try not to let the Nazis
get you down too much.


What Romance Movie Best Represents Your Love Life?
brought to you by Quizilla

fimmtudagur, nóvember 11, 2004

Arafat allur

Þá er Yasser Arafat látinn og búið að ákveða að grafa hann í Ramallah. Fréttaflutningurinn af dauðastríði hans undanfarnar tvær vikur var frekar ósmekklegur. Vandlega var tíundað í fjölmiðlum dögum saman hvaða líffæri hans voru búin að gefa sig, og fréttir bárust ítrekað af dauða hans nokkrum dögum áður en hann lést. Hvað sem fólki finnst um persónu Arafats eða feril, eiga allir rétt á ákveðinni mannlegri reisn. Þarna fannst mér það gleymast algerlega. Ég hitti Arafat í Ramallah fyrir rúmum tveimur árum og þá bar hann það með sér að vera veikur, en hugurinn var enn skarpur. Það kom mér á óvart hvað Arafat var hlýlegur í eigin persónu miðað við þá ímynd sem hann hafði í vestrænum fjölmiðlum. Nú er spurningin hvað tekur við í Palestínu. Eins og svo oft þegar sterkur leiðtogi hverfur af sjónarsviðinu er algerlega óljóst hver verður eftirmaður hans. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra hefur látið hafa eftir sér að með fráfalli Arafats skapist tækifæri til að koma "friðarferlinu" af stað á ný. Ég hef persónulega enga trú á því að ráðamenn Ísraels verði eitthvað sanngjarnari eða samvinnuþýðari við nýjan palestínskan leiðtoga, en kannski koma þeir mér og öðrum á óvart í þeim efnum.

miðvikudagur, nóvember 10, 2004

Hver verður næsti borgarstjóri?

Nú er Þórólfur búinn að segja af sér og þá er spurningin hver tekur við? Rennur upp nýr Dagur í Reykjavík, eða snýr Ingibjörg Sólrún aftur í borgarstjórastólinn? Sætta Framsóknarmenn sig við Stefán Jón, eða kemst Árni Þór loksins til metorða? Treystir Reykjavíkurlistinn Steinunni Valdísi fyrir stjórnartaumunum, eða verður Sigurður G. fenginn til að miðla málum? Er það kannski Helga Jóns, sú sama og félagsmálaráðherra vildi ekki í ráðuneytið, sem verður bjargvættur borgarbúa? Það er aldrei að vita. Ég styð Steinunni, en aðrir koma vissulega til greina.

þriðjudagur, nóvember 09, 2004

Aftur og nýbúin

Þá er kennaraverkfallið hafið á ný. Sennilega bjuggust allir við því að kennarar kolfelldu tillögu ríkissaksóknara, nema kannski Halldór Ásgrímsson sem var ekki með á nótunum frekar en svo oft áður. Forsætisráðherra sagði í fréttum fyrir rúmri viku að hann teldi miðlunartillögu sáttasemjara fela í sér "umtalsverða kjarabót" fyrir kennara og að hann "vildi ekki hugsa til þess" að verkfall hefðist aftur. Nú er verkfall hafið og þá er væntanlega kominn tími fyrir Halldór að hugsa hugsunina til enda og horfast í augu við staðreyndir. En kannski er það erfitt þegar menn eru í jafn lítilli æfingu og núverandi forsætisráðherra.

mánudagur, nóvember 08, 2004

Tímaskortur

Ég þjáist alvarlega af þeirri tímafátækt sem ritstjóri Nýs Lífs fjallar um í nóvemberhefti blaðsins. Það er sem sagt að koma í ljós að ég er ekki nýjasta eintakið af ofurkonunni eftir allt saman. Ég er alveg að kikna undan álaginu sem fylgir því að vera bæði í skóla og vinnu, þrátt fyrir þá staðreynd að ég á engin börn og ekki síður það að ég geri næstum engin heimilisstörf. Ef ég færi eftir ráðleggingum sumra um tímastjórnun myndi ég þegar í stað hætta öllum óþarfa, eins og því að lesa tímarit, fylgjast með fréttum eða blogga. En þá kemur upp spurningin um geðheilsuna. Ég er til dæmis fréttafíkill og mér líður beinlínis illa ef ég heyri ekki fréttir nokkrum sinnum á dag. Ég er líka tímaritafíkill og dagblaðafíkill. Líklega á þetta við alla fyrrverandi blaðamenn. Ég hef haldið dagbók í meira en 20 ár og fengi áreiðanlega fráhvarfseinkenni ef ég hætti því allt í einu. Hins vegar er ég búin að vara flesta vini mína við því að þeir sjái mig ekki nema í mýflugumynd fyrr en í fyrsta lagi eftir áramót. Þá verður öðru náminu mínu lokið, hvort sem það endar vel eða illa. Kannski enda ég sem sprenglærð kona sem á enga vini, þar sem þeir verða allir löngu búnir að gefast upp á mér áður en ég útskrifast.

sunnudagur, nóvember 07, 2004

Samkeppni

Í kvöld fór ég í fyrsta sinn á bensínstöð Atlantsolíu og fyllti tankinn á bílnum. Nú get ég ekið um götur bæjarins án þess að styrkja þau þrjú fyrirtæki sem svindlað hafa á landsmönnum með samráði árum saman. Svo er bensínið ódýrara hjá Atlantsolíu en víðast annars staðar. Það virðast margir aðrir hafa fengið sömu hugmynd, þar sem forsvarsmenn fyrirtækisins segja að salan hafi margfaldast undanfarna daga. Heyrst hefur að sumir fari á bensínstöðvar þríhöfðans og dæli bensíni á bíla sína án þess að borga, en það finnst mér ekki koma til greina. Vonandi halda sem flestir áfram að sniðganga Essó, Olís og Shell, enda eiga fyrirtækin ekkert betra skilið. Fyrir þá sem búa utan höfuðborgarsvæðisins er Essó sennilega skársti kosturinn, þar sem þeir voru samvinnuþýðastir við rannsókn Samkeppnisstofnunar samkvæmt fréttum. Versti kosturinn samkvæmt þessu hlýtur að vera Skeljungur, sem borgar hæstu sekt Samkeppnisstofnunar auk þess sem fyrrum forstjóri Skeljungs mun vera nefndur sem helsti hvatamaður samráðsins í skýrslu Samkeppnisstofnunar.

laugardagur, nóvember 06, 2004

Borgarstjóri

Ég horfði á Þórólf Árnason verja sinn málstað í Íslandi í dag og Kastljósinu. Hann kom betur út úr fyrrnefnda þættinum, þar sem stjórnendurnir gerðu sig algerlega að fífli og öfluðu honum samúðar. Ekki veit ég hvað Jóhanna Vilhjálmsdóttir er almennt að gera í sjónvarpi, en hún er alla vega ekki í starfinu vegna þess hve málefnaleg og yfirveguð hún er. Varðandi hlut borgarstjórans, þá finnst mér það virðingarvert hjá honum að koma og skýra mál sitt. Mun það duga honum til áframhaldandi setu sem borgarstjóri? Það finnst mér ólíklegt. En ég skil ekki af hverju fjölmiðlar gera ekki meira í því að draga þá til ábyrgðar sem voru í forsvari fyrir olíufélögin á sínum tíma. Hvar eru Kastljósþættirnir og Ísland í dag með Einari Benediktssyni, forstjóra Olís eða Geir Magnússyni, fyrrum forstjóra Essó? Af hverju situr Eva Bergþóra ekki um Kristinn Björnsson, fyrrum Skeljungsforstjóra og frú? Hvers vegna yfirheyrir Róbert Marshall ekki Thomas "fólk er fífl" Möller eða fyrrum framkvæmdastjóra markaðssviðs Skeljungs, Bjarna Snæbjörn Jónsson sem nú starfar hjá IMG Deloitte? Skulda þessir menn þjóðinni ekki skýringar, rétt eins og Þórólfur? Getur það verið að þetta fólk njóti verndar ákveðinna afla í samfélaginu sem Þórólfur nýtur ekki?

föstudagur, nóvember 05, 2004

Próf

Ég er að fara í próf eftir tæpa tvo tíma. Vegna tognunarinnar um daginn er ég uppfull af verkjalyfjum og ennþá hálf slöpp eftir svefnlyfin sem ég tók í gærkvöldi. Ég er ekki búin að lesa mjög mikið fyrir prófið, þar sem ég var svo kvalin alla vikuna. Þannig að annað hvort verður þetta próf algjör hörmung hjá mér eða gargandi snilld. Ég hef meiri trú á hinu fyrrnefnda, en á meðan ég fæ fimm eða hærra er mér eiginlega alveg sama. Ef ég verð nógu snögg í prófinu, sem er ekki ólíklegt, ætla ég aftur í ræktina. Hvers vegna? Vegna þess að ég er ekki sú manngerð sem gefst upp við eina litla tognun. En í þetta sinn ætla ég í byrjendatímann.

fimmtudagur, nóvember 04, 2004

Heilbrigð sál í hraustum líkama

Það er búið að standa til í allt haust hjá mér að hefja mikið líkamsræktarátak. Ég keypti mér árskort í líkamsræktarstöð, en hef ekki komist nógu oft sökum anna við vinnu og nám. En á mánudaginn mætti ég í ræktina beint eftir vinnu og ætlaði aldeilis að láta ljós mitt skína í leikfimitíma. Ætlunin var að mæta aftur á miðvikudeginum og síðan á föstudegi. Ég ætlaði að fara í byrjendatíma og taldi mig vera á réttum stað, en þegar tíminn hófst fóru að renna á mig tvær grímur. Leikfimin var hrikalega erfið, en ég hugsaði að ég hlyti bara að vera í svona slæmu formi og hoppaði með, þó ég væri komin með krampa í kálfann og verki í axlirnar. Þegar ég haltraði loks út úr tímanum klukkutíma síðar kom í ljós að ég hafði verið í röngum sal. Þetta var einn erfiðasti tíminn sem kenndur er í stöðinni. Árangurinn er sá að ég tognaði og nú get ég varla hreyft mig. Já, líkamsrækt er allra meina bót. Það má nú segja.

Borgin

Mikið er ég fegin að búa ekki í Reykjavík þessa dagana og þá er ég sérstaklega fegin að vera ekki borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans. Þeir eru ekki í öfundsverðri stöðu núna. Fjölmiðlar hamast á þeim og mér fannst leitt að sjá þá sómakonu Björk Vilhelmsdóttur missa aðeins stjórn á skapi sínu í viðtali við ágenga fréttakonu Stöðvar tvö í gær. En að sumu leyti er þetta sjálfskaparvíti samstarfsflokkanna í borginni. Ef þeir hefðu leyft Ingibjörgu Sólrúnu að halda áfram sem borgarstjóra væru þeir ekki í þessum vandræðum nú.

miðvikudagur, nóvember 03, 2004

Næsta stopp

Jæja, þá virðist Bush vera búinn að ná endurkjöri, þó að úrslit í Ohio séu enn ekki opinber. Hvar ætli Bush lendi næst? Í Íran á næsta ári eða verður það kannski sumar á Sýrlandi árið 2006? Dabbi og Dóri munu örugglega styðja árás Bandaríkjanna á hvaða land sem er, eins og þeirra er von og vísa. Kannski munu fleiri nytsamir sakleysingjar frá Íslandi láta plata sig í ófriðargæslu á nýjum stöðum. Ekki kæmi það mér á óvart.

þriðjudagur, nóvember 02, 2004

Kosningar

Þá er kosningadagur runninn upp í Bandaríkjunum. Í dag ákveða Bandaríkjamenn hvort að þeir kjósa John F. Kerry sem fertugasta og fjórða forseta sinn, eða hvort að Bush nær endurkjöri. Ég gleymi seint ræðu Bush fyrir nærri þremur árum, í janúar 2002, sem ég horfði á í sjónvarpi. Þar hótaði hann að ráðast á Íran, Írak og Norður-Kóreu. Í raun og veru lýsti hann yfir stríði á hendur heimsbyggðinni. Ekki sér enn fyrir endann á Íraksstríðinu, en ef Bush verður endurkjörinn er talsverð hætta á því að hann láti næst til skarar skríða í Íran. Skoðanakannanir sýna frambjóðendurnir eru jafnir, en ég vona svo sannarlega að Kerry verði kjörinn forseti. Ég ætla að vaka eins lengi og ég get í nótt til að fylgjast með kosningunum.

mánudagur, nóvember 01, 2004

Sætt

You are a golden
You are a Golden Retriever. The perfect dog. You
serve others well, yet will save them if the
time comes. You may be viewed as a doormat,
but you can stand up for yourself when needed.
Get a family, it will be good for you.


what type of dog are you
brought to you by Quizilla


Því meðan til er böl sem bætt þú gast

og barist var á meðan hjá þú sast

er ólán heimsins einnig þér að kenna

Tómas Guðmundsson
  • Myndasíðan mín
  • Ísland
  • Hundalíf
  • Palestína
  • www.flickr.com
    This is a Flickr badge showing public photos from farfuglinn. Make your own badge here.
  • Gönguferð á sandi
  • Brain Damage
  • Eclipse
  • Puff The Magic Dragon
  • Windmills Of Your Mind
  • The Blower's Daughter

  • Harpa
  • Hildigunnur
  • Nanna
  • Þórdís
  • Telma
  • Afi
  • Alla
  • Anna
  • Arngrímur
  • Ásta
  • Baun
  • Beta
  • Einar J.
  • Ella Stína
  • Elías
  • Erla
  • Erna
  • Erna E.
  • Eyja
  • Guðný Anna
  • Gurrí
  • Gurrý Guðfinns
  • Gvendarbrunnur
  • Hanna litla
  • Harpa Hreins
  • Heiða B.
  • Hildur
  • Hreinn
  • Hryssa
  • Hugskot
  • Ibba Sig.
  • Ingibjörg
  • Kalli
  • Kata
  • Kisuvinur
  • Kitta
  • Kókó
  • Lilja
  • Ljúfa
  • Matti
  • París
  • Pálína
  • Pönk
  • Silja
  • Snilldur
  • Steingerður
  • Svanurinn
  • Tóta litla
  • Vélstýran


  • Locations of visitors to this page
  • Global voices
  • OneVoice Movement
  • Palestine blogs

  • Fésbókin
  • Myndasíða Hörpu
  • Myndasíða Einars
  • Parísardaman
  • Brall í bauk
  • Hugarflug
  • Hugsandi
  • Ísland-Palestína
  • Vinir Indlands
  • Name: farfuglinn
    Location: Iceland

    Eilífðarstúdent, íbúðareigandi, yngri systir, dramadrottning, lestrarhestur, bíómyndafíkill og áhugamanneskja um ferðalög með meiru. Lönd sem ég hef komið til Evrópulönd sem ég hef heimsótt Bandarísk fylki sem ég hef komið til

    Powered by Blogger

    Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Free Counter
    Advanced Technology Institute